Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Stefán segir fjármálaráðuneytið lofa landsmönnum 50 þúsund krónum sem aldrei koma

Stefán Ólafsson, prófessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, segir í pistli sem hann birtir á Facebook að fjármála­ráðuneytið gangi óvenju langt í að villa um fyrir fólki í frétta­tilkynningu sem það birti í gær. Í tilkynningunni var fullyrt að kaup­máttur heimila myndi aukast á árinu, nánar tiltekið um 50 þúsund á mánuði. Stefáni segir þetta ekki standast skoðun.

Pistill Stefáns í heild sinni

KOSTULEG FRÉTTATILKYNNING FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIS

Fjármála­ráðuneytið sendi frá sér fréttatilkyningu í gær (06.01.2023) undir fyrir­sögninni „Útlit fyrir aukinn kaupmátt heimila á árinu“.

Þar er eftir­farandi fullyrt: „Útlit er fyrir að kaup­máttur heimila aukist að nýju á árinu, sé tekið mið af nýundirrituðum kjara­samningum á almennum markaði. Áætla má að ráðstöfunar­tekjur meðal­einstaklings á almennum vinnu­markaði verði um það bil 50 þúsund krónum meiri í hverjum mánuði í ár en í fyrra, bæði vegna hækkunar með nýjum kjara­samningum og breytinga í tekjuskatts­kerfinu þar sem persónu­afsláttur og þrepamörk hækka um 10,7%.“

Og síðar í tilkynningunni kemur þetta: „Áætla má, miðað við niður­stöður launa­rannsóknar Hagstofunnar og með hliðsjón af niður­stöðum kjara­samninga, að ráðstöfunar­tekjur meðal­einstaklings á almennum vinnu­markaði verði u.þ.b. 50 þús. kr. meiri í hverjum mánuði í ár en í fyrra, þar af 8 þús. kr. meiri vegna uppfærðra viðmiða tekju­skatts.“

Með þessu er dregin upp mjög villandi mynd. Ráðstöfunar­tekjur eru heildar­tekjur eftir skatt. Meðal­hækkun launa­taxta í nýgerðum kjara­samningi Starfs­greina­sambandsins (SGS) eru um 42.000 kr. á mánuði. Þetta er tekið sem aukning „ráðstöfunar­tekna“ í frétta­tilkynningunni (en þá á eftir að draga skattinn frá). Við þessar 42.000 kr. er síðan bætt 6.000 króna hækkun persónu­afsláttar og 2.000 krónum vegna uppfærslu viðmiða fyrir álagningar­þrep í tekju­skattinum, alls 8 þús. krónum. Þannig fær ráðuneytið það út að „ráðstöfunar­tekjur muni aukast um 50.000 kr. á mánuði“ á árinu 2023.

Til að þetta gæti staðist þyrfti þessi launa­hækkun að vera skatt­frjáls og reglu­bundin uppfærsla viðmiða í tekjuskatts­kerfinu að vera ígildi skatta­lækkunar. Hvorugt fær staðist, eins og allir hljóta að sjá. Auðvitað þarf að greiða fullan tekju­skatt af launa­hækkuninni (um þriðjung fyrir láglaunafólk), enda kemur hún ofaná laun sem eru að fullnýta persónu­afsláttinn nú þegar.

Hækkun viðmið­anna í tekju­skattinum er til að tryggja að skatt­byrðin verði svipuð á milli áranna 2022 og 2023, enda er um að ræða uppfærslu vegna verðbólgu og framleiðni­aukningar (9,6% verðbólga+1,1% framleiðni­aukning=10,7%). Þetta er því ekki skatta­lækkun, eins og sumir hafa þegar talið, enda má skilja frétta­tilkynningu ráðuneytisins þannig. Það er kostulegt að ráðuneyti skatta­mála láti slíkt frá sér fara.

Ef þessi uppfærsla væri ekki gerð þá myndi skatt­byrðin aukast. Þetta fyrir­komulag á uppfærslu viðmiða tekju­skatt­kerfisins komst á samhliða gerð Lífs­kjara­samningsins og var mikilvægt, því stjórn­völd höfðu áður oft látið hjá líða að uppfæra viðmið skattsins nægilega til að viðhalda óbreyttri álagningu milli ára og í reynd þannig hækkað skatt­byrðina.

Raunar er einnig ýjað að því í frétta­tilkynningunni að „kaup­máttur“ ráðstöfunar­tekna meðal­einstaklings á vinnu­markaði muni hækka um sem nemur þessum 50.000 krónum, enda hafa fjölmiðar og aðrir þegar talað um þetta þannig. En til að það gæti staðist þyrfti verð­bólgan líka að vera horfin út úr myndinni. En hún er enn tæplega 10%.

Í þessari frétta­tilkynningu fjármála­ráðuneytisins er þannig gengið óvenju langt í að villa um fyrir fólki og ber að harma svona vinnu­brögð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi