Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Minnast Fríðu Jóhannesdóttur: „Megi minningin um yndislegu og glettnu Fríðu veita styrk“

Blessuð sé minning Fríðu
Blessuð sé minn­ing Fríðu

Nátt­úru­stofa Aust­ur­lands minnt­ist Fríðu Jóhann­es­dóttur, fyrrum starfs­manns NA, í gær en hún lést í flug­slysi fyrir austan í júlí.

Minn­ing­ar­færsla um Fríðu birt­ist í gær á Facebooksíðu Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands í til­efni af jarð­ar­för hennar. Fríða hafði nýverið hafið störf hjá NA og var í hrein­dýra­taln­ingu, ásamt Skarp­héðni Þór­is­syni, vís­inda­manni og Krist­jáni Orra Magn­ús­syni flug­manni vél­ar­innar, er slysið varð.

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Mannlíf sendir ætt­ingjum og vinum Fríðu sam­úð­ar­kveðjur sínar.

„Í dag kveðjum við Fríðu í hinsta sinn. Fríða kom til starfa hjá Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands í sept­em­ber sl. og sinnti m.a. rann­sóknum og vöktun hrein­dýra. Hún var í árlegri sum­artaln­ingu hrein­dýra þegar hún lést. Fríða var vel mennt­aður vís­inda­maður með fjöl­breytta reynslu víðs vegar að úr heim­inum. Við töldum mik­inn feng að fá hana til stof­unnar. Hún vann af krafti við að setja sig inn í ný verk­efni og átti sann­ar­lega fram­tíð­ina fyrir sér við rann­sóknir á nátt­úru Aust­ur­lands.

Fríða hafði margt til brunns að bera sem ein­kennir góðan vís­inda­mann, hún var opin fyrir nýj­ungum, skörp, lausn­a­miðuð og brann fyrir við­fangs­efnum sínum, sem snér­ust á einn eða annan hátt um að rann­saka hvernig dýr bregð­ast við breyt­ingum í umhverfi sínu. Fríða var frum­leg í nálgun og til­búin að skoða við­fangs­efni sín frá ólíkum hliðum. M.a. hafði hún hug­myndir um að túlka nið­ur­stöður með aðstoð lista­manna. Hún hafði mik­inn áhuga á að miðla vís­indum til almenn­ings, einkum ungs fólks til að vekja áhuga. Það kom ber­sýni­lega fram í sam­skiptum hennar við frændsystk­inin hennar sem hún tal­aði svo fal­lega um og var aug­ljós­lega stolt af.Fríða var góður sam­starfs­maður, örlítið feimin í fyrstu, hóg­vær, jákvæð, hlý­leg og skemmti­lega húmor­ísk og glettin. Það var gaman að spjalla við hana, enda hafði hún sinnt frum­legum rann­sóknum um ævina og hafði frá mörgu að segja. Fríða hafði sam­kennd með bæði mönnum og dýrum og voru mýs og íkornar í sér­stöku upp­á­haldi hjá henni. Það var henni því mikið til­hlökk­un­ar­efni að und­ir­búa vöktun á hagamúsum sem hefj­ast áttu í haust í sam­starfi við Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands. Við munum alltaf minn­ast Fríðu hlý­lega þegar við rek­umst á þessi dýr í fram­tíð­inni.Því miður voru kynni okkar af Fríðu alltof stutt og svo margar minn­ingar sem átti eftir að skapa. Við yljum okkur nú við góðar minn­ingar úr sam­veru­stundum í skemmti­legri starfs­manna­ferð Nátt­úru­stof­unnar á Seyð­is­fjörð í lok júní og í Múlanum á föstu­deg­inum fyrir slysið. Þar lék hún á alls oddi og sagði okkur meðal ann­ars með bliki í auga hvað hún hlakk­aði mikið til að fara að fljúga hrein­dýra­flug með Skarp­héðni þá helgi. Við geymum dýr­mætar minn­ingar með okkur.Kæra Fríða, við kveðjum þig með trega og þökkum þér inni­lega fyrir vin­átt­una og sam­starfið.For­eldrum Fríðu, systrum, mágum og frændsystk­inum sendum við okkar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur. Megi minn­ingin um ynd­is­legu og glettnu Fríðu veita styrk á erf­iðum tím­um­Fyrir hönd starfs­fólk og stjórnar Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands Kristín Ágústs­dóttir for­stöðu­maður“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar