Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Mikið um pöddufullt fólk í nótt – Þrír vopnaðir hnífum í slagsmálum

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Ef hægt er að segja að eitthvað eitt ákveðið hafi einkennt nóttina á höfuð­borgar­svæðinu væri það ölvun og það mikil ölvun.

Í miðbæ Reykja­víkur var tilkynnt um þrjá aðila sem vopnaðir voru hnífum í slags­málum en þeir voru á brott er lögreglan mætti á staðinn og fundust ekki.

Tveir aðilar voru hand­teknir og vistaðir í fanga­klefa vegna þess að þeir gátu ekki framvísað skilríkjum eða gert grein fyrir sér. Eru þeir grunaðir um ólöglega dvöl hér á landi.

Eigendur þriggja skemmtistaða í miðborginni eiga von á kæru þar sem dyra­verðir voru ekki með réttindi eða þeir voru of fáir.

Og þá að blessaðri drykkjunni. Pöddu­fullur aðili í miðborginni fékk gistingu í fanga­klefa lögreglu þar sem hann stóð ekki í lappirnar og átti ekki í nein hús að vernda. Annar mold­fullur aðili fékk aðstoð lögreglu þar sem hann gat ekki með nokkru móti gengið og var honum skutlað heim. Í hverfi 105 var mold­fullur einstaklingi komið í húsaskjól þar sem hann var ósjálfbjarga. Þá var stjörnu­full kona til vandræða fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykja­víkur. Var henni ekið til síns heima þar sem engar líkur á því að hún myndi koma sér heim hjálpar­laust. Þá voru afskipti höfð af rokfullu ungmenni fyrir utan skemmtistað í miðborginni en ungmennið var flutt á lögreglustöð þar sem foreldrar þess náðu í það. Aukreitis voru þó nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun.

Sautján ára unglingur var hand­tekinn í miðborginni þar sem hann var að tálma störf lögreglu en þegar reyndar var að ræða við hann neitaði hann að gefa upp nafn og kennitölu. Var drengurinn fluttur á lögreglu þar sem rætt var við hann, samband haft við móður hans sem sótti hann.

Í Breið­holtinu voru skötuhjú nöppuð við að stela úr verslun en samkvæmt dagbók lögreglu var málið afgreitt með „vettvangs­formi“, hvað sem það nú þýðir.

Í Kópa­vogshöfn var kveikt í rusli í nótt en slökkviliðið slökkti eldinn en einhverjar skemmdir urðu á landgangi sem lá út á flota­bryggju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi