Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Halla Tómasdóttir nær launum Donalds Trump

Laun þing­manna, ráð­herra, for­seta Íslands og æðstu emb­ætt­is­manna hækka um næstu mán­aða­mót um 5,6%.

Forseti Íslands
Forseti Íslands Halla Tóm­as­dóttir fær launa­hækkun eins og aðrir ráða­menn þjóð­ar­innar. Mynd: AFP

Laun æðstu ráða­manna Íslands hækka um 5,6 pró­sent um næstu mán­aða­mót, en launin eru upp­færð einu sinni á ári í sam­ræmi við með­al­launa­hækkun rík­is­starfs­manna það árið.

Kemur fram á RÚV að þing­far­ar­kaup mun verða eftir hækk­un­ina rúmar 1,6 millj­ónir króna á mán­uði, hækkar um 85 þús­und krónur.

Þá verða laun ráð­herra rúmar 2,6 millj­ónir króna. Laun for­sæt­is­ráð­herra verða um 2,9 millj­ónir króna á mán­uði.

Laun for­seta Íslands hækka og verða um 4,25 millj­ónir króna á mán­uði - en dóm­arar við Hæsta­rétt fá rúmar 2,7 millj­ónir króna um næstu mán­aða­mót.

Laun for­seta Íslands eru nú - eftir breyt­ing­una - um 4,25 millj­ónir króna á mán­uði. Hafa laun Höllu tekið fram úr launum Banda­ríkja­for­seta, á gengi dags­ins í dag. Forseti Banda­ríkj­anna fær 400 þús­und Banda­ríkja­dali í árs­laun, eða sem nemur 51 milljón króna á ári, sem gerir svipuð mán­að­ar­laun og for­seti Íslands.

Einnig kemur það fram að sama hlut­falls­hækkun er í boði fyrir lög­reglu­stjóra, sak­sókn­ara, rík­is­sátta­semj­ara, seðla­banka­stjóra og dóm­arar við aðra dóm­stóla. Laun hópanna hækka árlega í sam­ræmi við launa­vísi­tölu rík­is­starfs­manna árið á undan.

Hag­stof­unni er falið að reikna hækk­un­ina út, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stofn­un­inni hækk­uðu launin um 5,6% á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“