Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Courtney Stodden fór í brjóstaminnkun

Hún sagði ákvörð­un­ina tengj­ast því að hún vildi end­ur­heimta stjórn á eigin lík­ama

Courtney Stodden
Courtney Stodden Mynd: Thepaparazzigamer/Wikipedia

Banda­ríska raun­veru­leika­stjarnan, Courtney Stodden, hefur geng­ist undir brjóstaminnk­un­ar­að­gerð og greinir frá því að ákvörð­unin hafi verið tekin eftir margra ára óánægju með brjósta­stækkun sem hún fór í ung að aldri.

Aðgerðin fór fram á föstu­dag á stofu lýta­lækn­is­ins Stuart Linder í Beverly Hills í Kali­forníu. Mynd­skeið frá aðgerð­inni sýnir Stodden á skurð­ar­borð­inu skömmu áður en hún var svæfð, þar sem hún hlust­aði á tón­list með Britney Spears.

Samkvæmt umfjöllun TMZ voru eldri brjóstapúðar fjar­lægðir og skipt út fyrir minni púða sem eiga að falla betur að lík­ams­bygg­ingu hennar. Lækn­ir­inn sagði nýju púð­ana veita eðli­legri hlut­föll en halda þó ákveð­inni fyll­ingu.

Stodden sagði í sam­tali við mið­il­inn að hún hefði lengi viljað fara í brjóstaminnkun, en talið að nú væri rétti tím­inn til þess. Hún sagði ákvörð­un­ina tengj­ast því að hún vildi end­ur­heimta stjórn á eigin lík­ama eftir að hafa í mörg ár fundið fyrir mik­illi athygli almenn­ings á útliti sínu.

Hún sagð­ist hafa farið í fyrstu brjósta­stækk­un­ina 18 ára gömul, skömmu eftir að hún gift­ist leik­ar­anum Doug Hutchison þegar hún var 16 ára en hann 51 árs.

Aðgerðin tókst vel að sögn lækn­is­ins og segir Stodden að breyt­ingin muni meðal ann­ars draga úr álagi á baki hennar. Hún úti­lok­aði þó ekki frek­ari fegr­un­ar­að­gerðir í fram­tíð­inni, meðal ann­ars svo­kall­aða „mommy makeover“-aðgerð ef hún eign­ast barn síðar meir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri