Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Vandræði séra Gunnars

Séra Gunnar Sigurjónsson , fyrr­verandi prestur í Digra­nes­kirkju, er í start­holunum með að sækja bætur vegna þess að honum var vikið úr starfi eftir að hann var sakaður um kynferð­is­legt áreiti af konum í sókn hans. Það merkilega við málið er að úrskurðar­nefnd Þjóð­kirkjunnar tók ekki afstöðu til annars en þess að Agnes Sigurðar­dóttir biskup hafi ekki haft umboð til að reka prestinn þar sem hún hafi ekki verið löglega skipuð.

Agnes M. Sigurðardóttir biskup.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup.

Ásakanir um brot prestsins í starfi standa óhaggaðar. Teymi þjóðkirkjunnar hafði komist að þeirri niðurstöðu að séra Gunnar hefði í tíu tilvikum orðið uppvís að háttsemi gegn sex konum sem sé ósæmileg, óhæfileg og ósamrýmanleg starfi hans sem sóknarprests.

Málið hefur haft þónokkrar afleiðingar fyrir prestinn sem missti vinnuna og æruna. Draumur hans um að gerast frímúrari er í uppnámi þar sem reglubræður eru ekki hrifnir af því að fá mann með slíka fortíð. Umsókn hans hefur verið mánuðum saman á þvælingi án afgreiðslu. Það flýgur fyrir að hann njóti þöguls stuðnings Kristjáns Björnssonar vígslubiskups sem jafnfram er einn æðsti maður Frímúrarareglunnar.

Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður séra Gunnars, hefur látið hafa eftir sér að hún vænti þess að Biskupsstofa muni bjóða honum „sanngjarnar bætur“ í framhaldi af niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar. Agnes hefur aftur á móti lýst því yfir að úrskurðinum verði áfrýjað. Þá hefur hún sagt að til greina komi að vígslubiskupar úrskurði í málum þar sem efast er um vanhæfi hennar.

Staða Kristjáns vígslubiskups kann að vera snúin í máli séra Gunnars. Þá yrði það í besta falli undarlegt ef presturinn fengi bætur af tæknilegum ástæðum eftir að hafa verið fundinn sekur um áðurnefnd brot gegn konunum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Slúður