Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Varað við innbrotahrinu um Verslunarmannahelgina: „Þetta er bara púslu­spil“

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Þessa dag­ana gengur yfir inn­brota­hrina að sögn lög­reglu. Fólk er beðið um að gæta verð­mæta vel.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu fyrir stuttu var fólk minnt á að gæta verð­mæta vel því að inn­brota­hrina stæði nú yfir og oft­ast gleymi fólk að læsa hurðum þegar það er brot­ist inn í hús þeirra. „Hvernig kemst ég inn í þetta hús? Hvað ger­ist þegar ég er kom­inn inn í þetta hús?“ sagði Ey­þór Víðis­son, öryggis-og lög­gæslu­fræð­ingur, í Bítinu á Bylgj­unni í gær­morgun um málið og sagði að fólk ætti að skoða hús sín vel og pæla í þessum hlutum.

„Segjum að við­kom­andi ætli inn til þín. Hann er kom­inn inn í húsið. Hvert fer hann? Hvað er hann lík­legur til að taka? Ertu að fara að sakna þessa hlutar? Er það tölvan með ferm­ingar­mynd­unum? Hvað geri ég þá við þessa tölvu?“

„Þú setur upp inn­brots­gler­augun. Hvernig ætla ég að skilja við hlut­ina? Til að mynda getur það skipt sköpum, bara það að læsa milli­hurðum og læsa hurðum. Ef þú ert með lykil inn í hurð í svefn­her­bergi, ef þú læsir henni áður en þú ferð, þá ertu búinn að tefja hann í tutt­ugu mín­útur, hálf­tíma. Setur svo kannski lyk­il­inn ofan í eld­hús­skúffu,“ sagði Eyþór um málið. Sér­stak­lega er mik­il­vægt að minna fólk á þessa hluti svona stuttu fyrir Versl­un­ar­mann­ar­helg­ina, sem er stærsta ferða­helgi árs­ins.

„Þetta er bara púslu­spil. Eftir því sem þú ert með fleiri púsl því örugg­ara er heim­ilið. Mynda­véla­kerfi er eitt púsl, öryggis­kerfi er eitt púsl, ná­granna­varsla er eitt púsl. Eftir því sem þú full­komnar mynd­ina því betur ertu staddur og ert lík­legri til þess að koma í veg fyrir hluti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar