Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Núna er hættulegast fyrir okkur að hlýða og þegja“

Steinunn Ólína kallar eftir nán­ara sam­starfi við Norð­ur­lönd og Evrópu.

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Leik­konan skrif­aði áhuga­verða Facebook-færslu Mynd: Kári Sverris

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, leik­kona, varar við veikri stöðu Íslands í breyttu alþjóða­kerfi og segir hættu­leg­ast að „hlýða og þegja“ á tímum þar sem vald taki við af reglum í sam­skiptum ríkja.

Í Facebook-færslu sinni sem hún birti í hádeg­inu í dag, vísar hún til orða for­sæt­is­ráð­herra Kanada á Alþjóða­efna­hags­þing­inu í Davos, þar sem hann lýsti því yfir að alþjóða­skipu­lagið í þeirri mynd sem við þekkjum væri liðin tíð. Að mati Stein­unnar eru þau orð ekki ýkt:

„Hann segir ein­fald­lega upp­hátt það sem margar minni þjóðir skynja: Heiminum er ekki lengur stjórnað með reglum, heldur er honum stjórnað og ógnað með þrýst­ingi og valdi.“

Hún bendir á að Kanada hygg­ist, í ljósi þess­arar þró­unar, efla eigið afl og leiða banda­lag með­al­stórra ríkja, en staða Íslands sé gjör­ó­lík:

„Ísland getur það ekki. Við höfum engan her, flytjum inn mest allt elds­neyti og mat og öryggi okkar byggir alfarið á náð og mis­kunn ann­arra.“

Að hennar mati sé mik­il­vægt að horfast í augu við raun­veru­leik­ann, jafn­vel þótt umræðan sé erfið:

„Sjálf­stæði Íslands nú er ekki raun­hæfur kostur. En umræðan skiptir okkur máli.“

Steinunn Ólína varar sér­stak­lega við því að treysta á einn vernd­ara eða eina leið fyrir lífs­nauð­syn­legar aðföng:

„Núna er hættu­leg­ast fyrir okkur að hlýða og þegja. Að þykj­ast vera full­veldi en búa við mjög við­kvæma stöðu í reynd.“ Bætir hún við: „Það er ekki full­veldi. Það er upp­gjöf.“

Í færsl­unni leggur hún áherslu á að Ísland eigi enn val, þótt land­fræði­leg staða geri það að verkum að landið geti ekki staðið eitt:

„Við getum ekki reitt okkur á einn vernd­ara. Við verðum að styrkja nor­rænt og evr­ópskt sam­starf og hugs­an­lega leita hóf­anna víðar?“

Hún telur jafn­framt að tryggja verði fjöl­breyttar aðfanga­leiðir og líta á grunn­inn­viði sem örygg­is­mál:

„Við verðum að líta á mat­væli, elds­neyti, sigl­ingar og neð­an­sjáv­ar­kapla sem þjóðar­ör­ygg­is­mál.“

Að lokum segir Steinunn Ólína að stærsta vopn smá­ríkja sé trú­verð­ug­leiki og virð­ing fyrir alþjóða­lögum:

„Í heimi þar sem vald­boð tekur við af reglum verða örugg­ustu smá­ríkin ekki þau sjálf­stæð­ustu, heldur þau smá­ríki sem vinna svo náið og djúpt með öðrum þjóðum að eng­inn hafi efni á því, að láta smá­ríkið, Ísland, falla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“