Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Hundruð skóla rýmdir vegna sprengjuhótana í Skotlandi og á Norður-Írlandi

Skila­boðin minna á hótun frá síð­asta mán­uði sem reynd­ist gabb. Svipaðar hót­anir bár­ust einnig skólum á Ítalíu, en ekki er vitað hvort málin tengj­ast.

Hund­ruðum skóla í Skotlandi og á Norður-Írlandi bár­ust sprengju­hót­anir sem lög­reglan telur til­hæfu­lausar. Hót­an­irnar leiddu til þess að fjöldi skóla rýmdi hús­næði sitt og nem­endur og starfs­fólk þurftu að yfir­gefa skól­ana.

Lög­reglan í Skotlandi segir að hót­an­irnar hafi borist með tölvu­pósti til fjölda skóla. Ekkert bendi þó til þess að þær séu trú­verð­ugar eða að almenn­ingi stafi hætta af þeim. Talið er að skila­boðin hafi verið send frá aðila utan Bret­lands.

Á Norður-Írlandi höfðu yfir 300 skólar til­kynnt lög­reglu um tölvu­póst sem vakti áhyggjur. Lög­reglan þar hefur hafið umfangs­mikla rann­sókn og vinnur með þeim skólum sem fengu hót­an­irnar.

Anthony McNally, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri á Norður-Írlandi, segir lög­reglu taka mál af þessu tagi mjög alvar­lega og skilji þær áhyggjur sem þær valdi meðal nem­enda, for­eldra og starfs­fólks skóla.

Lög­reglan í Skotlandi segir hins vegar að ekki sé ástæða til að rýma skóla eða halda börnum heima ein­göngu vegna inni­halds tölvu­póst­anna. Sérstök net­glæpa- og svika­deild rann­saki upp­runa skila­boð­anna í sam­starfi við lög­reglu­yf­ir­völd í Bret­landi og víðar.

Svipaðar sprengju­hót­anir bár­ust skólum í Skotlandi og á Norður-Írlandi í síð­asta mán­uði. Þá sagði mennta­mála­ráð­herra Norður-Írlands, Paul Givan, að hót­unin hefði verið íslömsk að upp­runa og verið und­ir­rituð með orð­unum „Allahu Akbar“.

Yfirvöld segja núver­andi skila­boð minna á hót­un­ina frá því í síð­asta mán­uði, sem síðar reynd­ist gabb.

Svipaðar hót­anir hafa einnig borist að minnsta kosti 300 skólum á Ítalíu í dag og voru þeir rýmdir. Ekki er vitað hvort málin tengj­ast, en und­an­farnar vikur hafa sprengju­hót­anir borist víða í Evrópu, meðal ann­ars gegn stór­mörk­uðum, flug­um­ferð­ar­stjórn, fjöl­miðlum og blóð­bönkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr