Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

„Hvað er best fyrir skuldugt fólk? Lægri vextir og engin verð­trygg­ing“

Sólveig Anna Jónsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir Björn gagn­rýnir Sólveigu Önnu ræki­lega í nýrri færslu. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir frá Grinda­vík, gagn­rýnir Vilhjálm Birg­is­son og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur í nýrri Facebook-færslu sem vakið hefur athygli, fyrir afstöðu þeirra til upp­töku evru á Íslandi. Hann segir höfnun evr­unnar geta komið niður á almenn­ingi með hærri vöxtum og áfram­hald­andi verð­trygg­ingu.

Í færsl­unni gagn­rýnir Björn einnig það sem hann kallar „hlægi­legan met­ing“ verka­lýðs­leið­tog­anna. Hann vísar þar til deilna þeirra við Höllu Gunn­ars­dóttur hjá VR vegna ólíkrar nálg­unar á fram­leng­ingu kjara­samn­inga. Að sögn Björns hafa Vil­hjálmur og Sólveig Anna sakað Höllu um leik­ara­skap vegna þess að hún vildi fara aðra leið til að fram­lengja samn­ing­ana og forð­ast að þeir yrðu felldir úr gildi.

Segir lægri vexti og afnám verðtryggingar skipta mestu

Meg­in­á­hersla Björns er þó á gjald­miðla­málið. Hann segir að hags­munir skuld­setts almenn­ings felist fyrst og fremst í lægri vöxtum og afnámi verð­trygg­ingar, fremur en hefð­bundnum launa­hækk­unum í krónum.

„Hvað er best fyrir skuldugt fólk? Lægri vextir og engin verð­trygg­ing,“ skrifar Björn.

Hann gagn­rýnir þá nálgun að leggja meg­in­á­herslu á þriggja til fimm pró­senta launa­hækk­anir og segir slíkar hækk­anir geta runnið út í verð­lag og ýtt undir verð­bólgu.

Að mati Björns hefði upp­taka evru getað skapað tæki­færi til breyt­inga á þessu sviði. Hann telur að þeir verka­lýðs­leið­togar sem hafi lagst gegn evr­unni hafi þar með unnið gegn hags­munum eigin félags­manna.

Segir pólitík ráða afstöðunni

Björn heldur því fram að and­staðan við upp­töku evru ráð­ist fremur af póli­tískum sjón­ar­miðum en hags­munum launa­fólks. Hann segir að breyt­ing hafi verið í boði en henni hafi verið hafnað vegna þess að þeir sem voru and­vígir vildu ekki styðja stefnu rík­is­stjórn­ar­innar.

„Almenn­ingi mun blæða fyrir vikið á kom­andi árum,“ skrifar Björn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Pólitík

Pólitík

Vill láta lottó ráða hverjir sitja á Alþingi

Björn Leví Gunnarsson vill að kosningakerfið endurspegli betur að þingmenn séu kjörnir sem einstaklingar en ekki fulltrúar flokka.
  • Pólitík

    Ingvar yfir­gefur Viðreisn

  • Pólitík

    „Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

  • Pólitík

    Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata