Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Lenya Rún varaþingmaður var lögð inn á Klepp viku eftir Silfrið: „Ég tek brjálæðiskast“

Lenya Rún
Lenya Rún

„Þarna var ég í Silfrinu að rökræða við einhverja pólitíkusa um málefni líðandi stundar. Svo fer ég heim og tek eitthvað kast. Ég tek brjál­æðiskast því ég var svo ótrúlega svöng og undir svo miklu álagi,“ sagði Lenya Rún Taha Karim, vara­þingmaður Pírata í einlægu viðtali í sjónvarps­þættinum Okkar á milli með Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur á RÚV í gær.

Lenya hefur glímt við átröskun frá árinu 2013. Hún segist hafa verið föst í því að vera fullkomin og vildi hafa stjórn á öllu í kringum sig. Hún tók ekki eftir því hvað hún var veik fyrr en viku fyrir innlögn á Klepp. Þar dvaldi hún í 8 vikur í meðferð við átröskun.

Þó að hún sé á góðum stað er hún meðvituð um að hún sé enn veik og átta vikna innlögn geri þannig séð lítið sem ekkert.„Það eina sem ég fékk út úr þessu er bara byrjunin á því að geta borðað aftur og tileinkað mér öðruvísi tæki og tól til að kljást við þessar erfiðu tilfinningar sem ég fæ stundum. En ég er samt sem áður skíthrædd við þetta, þetta er svo fín lína“.

Bætir við:

„Það er enginn full­kominn og það er ekki hægt að hafa stjórn á öllu, þannig er bara lífið. Ég var bara dottin í einhverja holu. Ég fann bara fyrir því að ég var að deyja. Það var alveg smá högg að átta sig á því.“

Lenya dregur ekkert undan og hvetur alla til að leita sér aðstoðar ef það glímir við veikindi; henni finnst mikilvægt að taka samtalið um geðræna sjúkdóma og hún ætlar að halda áfram að berjast fyrir geðheil­brigðis­málum á Alþingi; heilmikið vanti enn upp á aðstöðuna á Kleppi og að það þurfi að gera mun betur:

„Þetta eru algjör forréttindi og alls ekki sjálf­sagður hlutur, að vera á lífi. Þess vegna langar mig líka að ítreka mikilvægi þess að leita sér hjálpar þegar fólk er að glíma við einhvers konar geðræn vandamál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi