Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Senda einstæða móður og átta börn hennar úr landi: „Elsta dóttirin er með andlega fötlun“

Þessi börn eru ekki velkomin hér á landi, samkvæmt yfirvöldum.
Þessi börn eru ekki vel­komin hér á landi, sam­kvæmt yfir­völdum. Mynd: Aðsend

Tvær barna­fjöl­skyldur settu sig í sam­band við Samtökin Réttur barna á flótta í gær og köll­uðu eftir hjálp.

Samtökin Réttur barna á flótta sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem sagt var frá tveimur barna­fjöl­skyldum sem nýlega fengu þær fréttir að umsókn þeirra um hæli á Íslandi hafi verið hafnað og að til standi að reka þær úr landi en önnur þeirra kom hingað til lands í lok síð­asta árs en hin hefur verið hér í um níu mán­uði.

Önnur fjöl­skyldan er frá Palest­ínu en hún kom til Evrópu í gegnum Spán. Móðirin er ein­stæð með átta börn en aðeins tvö þeirra eru yfir lög­aldri. Þrjú barn­anna eru í sér­lega við­kvæmri stöðu en elsta dóttirin er and­lega fötluð og getur ekki séð um sig sjálf, annað er floga­veikt og við­kvæmt fyrir stressi og hið þriðja er að jafna sig eftir upp­skurð sem það fór í í lok ágúst. Kemur fram í færsl­unni að nú ætli yfir­völd á Íslandi að senda fjöl­skyld­una aftur til Spánar, þrátt fyrir að hún hafi ekki fengið vernd þar í landi.

Barnið er að jafna sig eftir aðgerð.

Hin fjöl­skyldan er frá Írak en kom til Íslands frá Grikk­landi þar sem hún hafði dvalð í Chios við ómann­úð­legar aðstæður, auk þess sem fað­ir­inn varð fyrir hrotta­legu ofbeldi lög­regl­unnar.

Ljósmynd sem íraska fjöl­skyldan tók flótta­manna­búð­unum í Grikk­landi

Að lokum for­dæma sam­tökin ákvörð­un­ina um að brott­vísa börnum til Grikk­lands vegna aðstæð­anna þar. Þá for­dæma sam­tökin einnig notkun Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­inna í máli við­kvæmra hópa, sér í lagi í máli veikra barna.

Yfir­lýs­ing­una má í heild sinni hér:

„Í gær settu tvær barna­fjöl­skyldur sig í sam­band við okkur og köll­uðu eftir hjálp vegna brott­flutn­ings.

Önnur fjöl­skyldan er frá Palest­inu og kom til Evrópu í gegnum Spán. Móðirin er ein­stæð og með 8 börn (þar af tvö yfir lög­aldri). Þrjú barn­anna eru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu: Elsta dóttirin er með and­lega fötlun og getur ekki séð um sig sjálf, eitt barnið er floga­veikt og er sér­stak­lega við­kvæmt fyrir stressi og eitt barnið er enn að jafna sig eftir skurð­að­gerð sem það fór í í lok ágúst. Til stendur að senda móð­ur­ina ásamt öllum börn­unum til Spánar þrátt fyrir að þau hafi ekki fengið vernd þar í landi og hafa þar að auki ekk­ert tengsla­net. Fjöl­skyldan hefur miklar áhyggjur af öryggi sínu.Hin fjöl­skyldan er frá Írak og eru með vernd í Grikk­landi þar sem þau dvöldu í 3 ár í Chios þar sem aðstæður voru ómann­úð­legar og fað­ir­inn varð fyrir lík­am­legu ofbeldi af hendi lög­regl­unnar. Börnin tvö eru 11 og 13 ára gömul.Réttur barna á flótta for­dæmir ákvörðun um að brott­vísa á börnum til Grikk­lands þar sem aðstæðum hefur verið lýst og for­dæmd í ótelj­andi skýrslum frá fjöl­mörgum sam­tökum. Við for­dæmum einnig notkun Dyfl­inn­ar­reglu­gerðar í máli við­kvæmra hópa og sér­stak­lega hér í máli veikra barna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar