Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ísland aðstoðar Úkraínu í stríðinu gegn Rússum: „Það er mikil þörf fyrir búnað eins og þennan“

Steinunn Þorsteinsdóttir.
Steinunn Þor­steins­dóttir.

Landsnet, RARIK og fleiri orku- og veitu­fyrirtæki hyggjast senda Úkraínu­mönnum ýmsan búnað; til dæmis gamlar vara­aflvélar.

Með þessu svara fyrir­tækin ákalli Utan­ríkis­ráðuneytisins um aðstoð við að byggja upp innviði Úkraínu eftir árásir Rússa.

Kemur fram á ruv.is að RARIK vinnur að því að taka niður varaflvélar í Neskaupstað; til stendur að flytja þær til Úkraínu en þar í landi skortir slíkan búnað eftir árásir Rússa á raforku­innviði landsins.

Vélarnar þykja of gamlar til að nýta hér á landi.

Með þessu sé RARIK að svara áður­nefndu kalli frá Utan­ríkis­ráðuneytinu um hjálp handa Úkraínu­mönnum; og mögulega muni RARIK senda annan búnað einnig.

Landsnet mun halda utan um það verkefni fyrir hönd Íslands, að hjálpa Úkraínu­mönnum að byggja upp skemmda raforku­innviði:

„Við erum búin að taka saman þann búnað sem við erum að fara að senda af stað og það eru rofar, varnar­búnaður, spennar og varaafl. Svo er líka verið að senda bíla, sendibíla sem hægt er að nota í viðgerðum.

Við erum að gera þetta í samstarfi við önnur orku- og veitu­fyrirtæki á landinu og við erum líka í samstarfi við ENTSO-e sem er í Evrópu og heldur utan um orku- og veitumál þar. Svo er Utan­ríkis­ráðuneytið með okkur í þessu líka þannig að þetta er stór pakki sem við erum að senda út alveg á næstunni. Það fer bara um borð í skip hjá Eimskip. Það er mikil þörf fyrir búnað eins og þennan. Og við vonumst til þess að hann komi að góðum notum sem allra fyrst því eins og sagt er að ljós það veitir von og það er það sem Úkraína þarf á að halda núna,“ segir upplýsinga­fulltrúi Landsnets, Steinunn Þorsteins­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi