Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Dularfullt skattamál Sigríðar

Páll Vilhjálmsson, kennari við Fjölbrautar­skólann í Garðabæ og bloggari, stendur í ströngu þessa dagana. Hann hefur kallað yfir sig reiði stjórn­enda Ríkis­útvarpsins með umfjöllun sinni um „skatt­svikamál“ Sigríðar Daggar Auðuns­dóttur, umsjónar­manns Kastljóss. Páll fullyrðir að Sigríður hafi leigt út fjórar íbúðir í húsi sínu við Surðurgötu á airbnb án þess að gefa upp tekjur upp á milljóna­tugi. Þá segir sögu­kennarinn að Sigríður Dögg hafi notið náðar Bryndísar Gunnars­dóttur skatt­rannsókna­stjóra sem hafi leyft henni að greiða álag og sekt í stað þess að fara til dómstóla með málið. Þessu til viðbótar gefur Páll til kynna að fjölmiðla­fyrirtæki Sigríðar hafi unnið fyrir skatt­rannsókna­stjóra. „Um það leyti sem skatt­svikamál Sigríðar Daggar var á borði Bryndísar skatt­rannsókna­stjóra stóð Bryndís í stórræðum í opinberri umræðu …,“ skrifar Páll.

Páll hefur ekki sýnt fram á gögn í málinu en fullyrðir að heimildir séu fyrir því að mál séu svona vaxin. Sigríður Dögg hefur einnig hafnað því að gefa upp þau gögn sem eru að baki „endur­álagningu“ skatta vegna leigu­íbúða hennar við Suðurgötu. Hún svarar ekki ítrekuðum spurningum Mannlífs um þetta efni sem gefur henni tækifæri til að hreinsa nafn sitt. Þess í stað gaf hún gaf einhliða yfir­lýsingu á Facebook um að hún væri saklaus af áburðinum.

Víst er að ef um uppspuna er að ræða hjá sögu­kennaranum þá mun Sigríður Dögg geta náð út háum bótum í gegnum dómstóla. En ef satt reynist þá er hins vegar um að ræða spillingarmál af stærri gerðinni.

Stjórn­endur Ríkis­útvarpsins standa þétt að baki Sigríði Dögg sem var mætt í Kastljós í gær. Það er vísbending um að Stefán Eiríksson útvarps­stjóri og undirmenn hans  telji hana saklausa og leggi nafn og heiður stofnunarinnar undir í málinu. Einu fréttir Ríkis­útvarpsins af Páli og bloggi hans eru þær að krefja hann svara vegna umfjöllunar um málefni trans­fólks. Nokkur samstaða er meðal fjölmiðla í landinu um að spyrja ekki spurninga varðandi Sigríði Dögg og dular­fulla skatta­málið. Aftur á móti hefur verið boðað að málið verði tekið upp á Alþingi og kallað eftir gögnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Slúður