Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Stefán á flótta

Stefán Eiríksson .
Stefán Eiríks­son .

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri er orð­inn óró­legur ef marka má við­tal við hann í Bítinu á Bylgj­unni. Þar sagð­ist hann ekki reikna með að halda áfram sem útvarps­stjóri þegar fimm ára skip­un­ar­tíma hans lýkur. Hann gaf til kynna að ástæðan væri sú að hann lang­aði til að breyta til. Þessi skýr­ing er af mörgum talin vera yfir­klór.

Stefán glímir við ýmis mál inn­an­húss sem gætu orðið honum skeinu­hætt. Hæst ber þar inn­brot tækni­manns og starfs­manna RÚV í síma Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra sem rændur var á sjúkra­beði þar sem hann lá milli heims og helju. Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, hætti störfum eftir að málið komst í hámæli. Þóra Arn­órs­dóttir, þáver­andi rit­stjóri Kveiks, kemur við sögu í síma­mál­inu. Hún hvarf óvænt á braut og gegnir nú stöðu fjöl­miðla­full­trúa Lands­virkj­unnar.

Mál frétta­manns­ins Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur, sem við­ur­kenndi skatta­snið­göngu, er útvarps­stjóra erfitt. Stefán hefur veitt henni skjól í stað þess að krefj­ast þess að hún upp­lýsi und­an­bragða­laust um skatta­málið og taki ábyrgð á gjörðum sínum.

Við þetta bæt­ist að rekstur Rík­is­út­varps­ins þykir ein­kenn­ast af óráðs­síu. Dagskrá sjón­varps og hljóð­varps er að miklu leyti end­ur­tekið efni og algjört metn­að­ar­leysið ríkj­andi. Þá er sú spill­ing algeng að starfs­fólk sé gjarnan að ræða hvert við annað í hinum ýmsu þáttum. Á flestum fjöl­miðlum er það regla á rit­stjórnum að fólk taki ekki við­töl hvert við annað í eigin miðli.

Hermt er að Stefán njóti hvorki stuðn­ings útvarps­ráðs eða mennta­mála­ráð­herr­ans, Lilju Alfreðs­dóttur og að hann sé þess full­viss að end­ur­ráðn­ing komi ekki til greina. Það er heitt undir útvarps­stjór­anum. Flótta­leiðin sé sú að segj­ast langa til að hætta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Slúður