Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Það er erfitt að vera ungur karlmaður í vestrænum heimi í dag“

Skák­stór­meistarinn Vignir Vatnar Stef­ánsson segist gríðar­lega þakklátur fyrir lífið

Vignir Vatnar Stefánsson
Vignir Vatnar Stef­áns­son Mynd: Skák.is

Skák­stór­meistarinn Vignir Vatnar Stef­ánsson segist gríðar­lega þakklátur fyrir lífið eftir að hafa glímt við alvarlega vanlíðan og farið svo djúpt að hann hugleiddi að taka eigið líf. Hann vill nú nýta reynslu sína til að opna umræðuna um andlega líðan ungra karlmanna og veita öðrum í sambærilegri stöðu von.

Vignir er nýjasti gestur Sölva Tryggva­sonar í hlaðvarpi hans. Hann hefur á undan­förnum árum skipað sér í hóp öflugustu ungu skákmanna Íslands og vakið athygli fyrir árangur sinn við skák­borðið.

Í viðtalinu ræðir Vignir meðal annars opinskátt um erfið tímabil í lífi sínu. Hann telur mikilvægt að samfélagið taki stöðu ungra karlmanna alvarlega og segir marga þeirra glíma við einangrun, fíkn og slæma andlega líðan.

„Það er erfitt að vera ungur karlmaður í vestrænum heimi í dag og þess vegna finnst mér að mér beri ákveðin skylda til þess að tala um þetta og gefa ungum karl­mönnum sem eru að glíma við erfið­leika von og sýna að það sé hægt að komast út úr þessu,“ segir Vignir.

Hann nefnir meðal annars tölvuleikja­fíkn og klám sem dæmi um þætti sem geti ýtt undir fíkn og einangrunar­hegðun. Sjálfur vilji hann sýna með sögu sinni að hægt sé að snúa við blaðinu.

„En það er alltaf leið út og ég er besta dæmið um það. Ég held að mér beri skylda að hjálpa með því að segja mína sögu og vera alveg opinskár.“

Mikið hark að lifa á skákinni

Vignir ræðir einnig atvinnu­mennskuna í skák og segir það hafa verið mikið hark að reyna að fram­fleyta sér eingöngu með keppni. Verðlaunafé geti sveiflast verulega eftir árangri og stundum geti ein skák skipt sköpum fjárhags­lega.

Hann tekur sem dæmi mót í London þar sem sigur hefði skilað honum um 1,8 milljónum króna. Vignir var með vænlega stöðu gegn spænskum stór­meistara í úrslitum en skákin endaði með jafntefli.

„Það þýddi að ég fékk þrjúhundruð þúsund kall í staðinn. Þannig að það eru ekki alltaf jólin í þessu,“ segir hann.

Að hans sögn er því mikilvægt fyrir atvinnu­skákmenn að byggja upp eigin ímynd, nýta samfélags­miðla og afla samstarfs­aðila í stað þess að reiða sig eingöngu á verðlaunafé.

Staða Vignis hefur batnað samhliða auknum árangri og athygli. Hann segir fjárhags­lega óvissuna ekki lengur jafn mikla og áður.

„Ég er ekki lengur í þeirri stöðu að ef ég vinn ekki mót, þá geti ég ekki borgað leiguna mína. Þannig að ég er mjög þakklátur og ætla að halda áfram að elta drauminn alla leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði