Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Segir ríkisstjórnarsamstarfið ráðast 1. september:„Hvalur undirbýr margra milljarða skaðabótakröfu“

Vilhjálmur Birgisson.
Vil­hjálmur Birg­is­son.

Vil­hjálmur Birg­is­son segir nán­ast úti­lokað að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið haldi, heim­ili mat­væla­ráð­herra ekki hval­ver­iðar þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Verka­lýðs­for­kálf­ur­inn Vil­hjálmur Birg­is­son skrif­aði færslu á Facebook í dag þar sem hann lýsir yfir ánægju sinni með að Hvalur hf. hafi boðið starfs­mönnum sínum vinnu í sumar en bætir við að það geri fyr­ir­tækið til að tryggja mann­skap þegar hval­veiði­bann Svan­dísar Svav­ars­dóttur rennur út þann 1. sept­em­ber.

Í færsl­unni kallar Vil­hjálmur ákvörðun Svan­dísar „ógeð­felld stjórn­sýslu­vinnu­brögð“ og segir fróð­legt að sjá hvort hún muni heim­ilia veið­arnar aftur í byrjun sept­em­ber eður ei. „Mitt mat er að ef veið­arnar verði ekki heim­il­aðar þá hljóti þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf að springa, annað er nán­ast úti­lokað,“ sagði Vil­hjálmur að lokum.

Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Ég verð að lýsa yfir ánægju með að Hvalur hafi boðið starfs­mönnum vinnu í sumar en að sjálf­sögðu er Hvalur að tryggja að fyr­ir­tækið hafi mann­skap þegar svo­kall­aða „tíma­bundna“ hval­veiði­bann rennur út sem er 1. sept­em­ber.

Enda blasir við að Hvalur mun fara á veiðar 1. sept­em­ber og reyna að lág­marka það gríð­ar­lega fjár­hagstjón sem mat­væla­ráð­herra hefur valdið starfs­mönnum og fyr­ir­tæk­inu.Rétt er að geta þess að sú vinna sem er í boði hjá Hval er ein­ungis dag­vinna ef ég skil þetta rétt og nema þær launa­tekjur ein­ungis brot af þeim tekjum ef þetta ólög­lega tíma­bundna hval­veiði­bann hefði ekki komið til.Það verður fróð­legt að sjá hvort mat­væla­ráð­herra ætli að halda áfram að ástunda ógeð­felld stjórn­sýslu­vinnu­brögð og heim­ila ekki veið­arnar 1. sept­em­ber eins og ráð­herr­ann hefur nú þegar gefið í skyn að hún ætli sér að gera.Það er alveg ljóst að Hvalur er að und­ir­búa margra millj­arða skaða­bóta­kröfu á hendur rík­inu. Það er bara spurn­ing hversu há hún verður, en það mun vænt­an­lega ráð­ast á því hvort veið­arnar verða heim­il­aðar 1. sept­em­ber eða ekki.Það verður hins vegar fróð­legt að sjá við­brögð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins ef mat­væla­ráð­herra heim­ilar ekki veiðar frá og með 1. sept­em­ber.Mitt mat er að ef veið­arnar verði ekki heim­il­aðar þá hljóti þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf að springa, annað er nán­ast úti­lokað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar