Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Davíð Goði segist brenndur eftir Eddu Falak: „Mesti narsissisti sem hefur komið til Íslands“

Davíð Goði
Davíð Goði Mynd: Instagram-skjáskot

Í nýjasta hlað­varps­þætt­inum Close Friends Podcast, lýsa Davíð Goði og Alex Michael Green Svansson kynnum sínum við Eddu Falak. Segjast þeir brenndir eftir hana.

Í mynd­broti sem birt­ist á TikTok sam­fé­lags­miðl­inum ræða þeir Davíð Goði, Alex Svanson eða Alex from Iceland eins og hann er kall­aður, Beggi Ólafs og Lil Curly um kynni þeirra Davíðs og Alex af Eddu Falak, fyrrum blaða­manns og hlað­varps­stjórn­anda.

Davíð Goði Þor­valds­son og Fjóla Sig­urð­ar­dóttir áttu hlað­varps­þátt­inn Eigin konur ásamt Eddu Falak en þau saka Eddu um að hafa stolið þætt­inum og þar með tekjum af honum upp á millj­ónir króna. „Mann­eskjan er að svíkja bestu vin­konu sína og góðan vin sem eru að starta ógeðs­lega flottu verk­efni um allan pen­ing­inn,“ útskýrir Alex fyrir félögum sínum í hlað­varps­þætt­inum Close Friends Podcast og átti þá við þau Fjólu og Davíð. Davíð Goði segir þá: „Ef við tökum þetta saman þá settum við örugg­lega í þetta 10-12 millj­ónir í þetta verk­efni. Eða ég per­sónu­lega.“ Alex greip þá fram fyrir félaga sínum: „Já, fyr­ir­tæki þitt lagði út þetta og hvað gerir hún? Eini pen­ing­ur­inn sem kom inn, hún tók hann. Þetta er nuts.“

Davíð Goði: „Já. Þetta podcast, ef við tökum þetta saman, hefur örugg­lega grætt (hér er pípað yfir upp­hæð­ina) millj­ónir. Og þetta er bara fólk sem er að styðja, mán­að­ar­lega. Eða sponsar. Og við Fjóla höfum ekki séð krónu. Ekki eina.“

Beggi Ólafs: „Mér finnst áhuga­vert að pæla í því hvort eru intentions (ísl. fyr­ir­ætl­anir) bak við það sem hún er að gera er sam­kennd fyrir þeim sem minna mega sín og þurfa á rödd að halda, eða er hvat­inn á bak við það að rífa þá niður sem eru successful (ísl. far­sælt) og koma sjálfri sér á fram­færi.“

Alex: „Það hefur farið fyrir hjartað á okkur báðum að vita að þessi stelpa, henni er drullu­sama um fórn­ar­lömbin. For­sendur hennar fyrir að gera þetta eru 100 pró­sent bara fyrir athygli og pen­inga. Og vit­andi það hefur gert mig brjál­aðan því að mann­eskja sem er að gera þetta á að hafa empathy (ísl. sam­kennd) fyrir fórn­ar­lömbin en er ekki að nota þau til að græða pen­ing og fá athygli.“

Síðar í sam­tal­inu vildi Alex taka fram að þeir væru ekki bara ein­hverjir „gaurar að drulla yfir ein­hverja gellu sem er að berj­ast fyrir ein­hverju“, heldur gamlir, nánir vinir Eddu sem séu „brenndir“. „Við vorum að hanga saman og fórum í ótal ferðir og vorum bara að kynn­ast og það var vina­hópur að form­ast þarna. En við erum eig­in­lega bara brenndir eftir hana og þá sér­stak­lega þú,“ sagði Alex og beindi orðum sínum að Davíð. „Ég spott­aði hana mjög snemma þannig að ég fjar­lægði mig mjög fljót­lega. Og ég var að vara þig svo massíft við þegar þú varst að fara af stað.“

Davíð Goði: „Þegar við end­uðum þetta sam­starf og í kjöl­farið þessa vin­áttu, þá var mikil sorg hjá mér því ég var bara að missa vin­konu sem ég hélt að væri góð vin­kona mín og ég var sömu­leiðis að missa af verk­efni sem ég fór af stað með og hélt að gæti orðið eitt­hvað magnað. En það sást ekk­ert hjá henni. Það sást engin van­líðan eða „vá hvað þetta er leiðn­legt“, þetta var bara „ég vona að þið getið óskað mér góðs gengis og sjá mig blómstra“, og svo hefur hún ekki haft sam­band við okkur aftur og hún hefur ekki borgað okkur pen­ing sem við eigum inni.“

Alex: „Það voru alveg búnar að safn­ast upp góðar upp­hæðir í byrjun podcastsins.“

Davíð Goði: „Það var bara „Ég er búin að semja við nýjan aðila til að byrja með og ég vona að þið óskið mér góðs gengis“.“

Alex: „Pældu hvað það er sjúkt, þetta er besta vin­kona þín og ótrú­lega góður vinur sem hjálpa þér að fara af stað með geð­veikt fal­legt verk­efni og þú skilur við það á þennan hátt. Pælið í því hvað það er grimmt.“

Davíð Goði: „Og það er ekki einu sinni horft til baka. Þetta voru síð­ustu skila­boðin sem ég hef fengið og það hefur aldrei verið talað saman eftir þetta og við sitjum bara eftir þetta og spyrjum „ok, hvað gerð­ist?“.“

Alex: „Og þetta er mann­eskjan sem sam­fé­lagið lítur á sem bar­áttu­mann­eskju fyrir kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart kven­fólki.“

Í lok mynd­skeiðs­ins segir Alex: „Hún stofn­aði ein­hverja hreyf­ingu bak við eitt­hvað brand um að hún sé að vernda fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­of­beldis, sem er bara rosa­leg brynja. En fólk sem hefur reynslu af henni eins og ég og Davíð, við vitum að þetta er mesti nars­iss­isti sem ein­hvern tíma hefur komið til Íslands. Þessi mann­eskja hefur ekk­ert empathy, ekki neitt.“

Hér má horfa á mynd­skeiðið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar