Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Segir heiminn nú standa frammi fyrir „miklum skelfingum, mannfalli og flóttamannastraumi“

„Það eru engar hömlur á eyð­ing­ar­mætti mesta her­veldis heims og skugga­stjórn­endum þess í Ísrael“

Ayatollah Ali Khamenei minnst
Aya­tollah Ali Khamenei minnst Fjöldi manns safn­að­ist saman til að minn­ast leið­tog­ans sem drep­inn var í árásum í gær Mynd: ATTA KENARE / AFP

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, gagn­rýnir harð­lega árásir Ísraels og Banda­ríki­j­anna á Íran og varar við alvar­legum afleið­ingum þeirra í tveimur Facebook-færslum sem hann birti í kjöl­far aðgerð­anna. Þar segir hann Ísrael hafa hafið stríð gegn Íran með virkum stuðn­ingi Banda­ríkja­hers, að hans mati án lög­boð­ins sam­þykkis banda­ríska þings­ins.

„Þá hefur Ísrael hafið stríð gegn Íran og nýtur aðstoðar dyggra þjóna í Banda­ríkja­her sem er att fram af for­seta lands­ins án þess að hann hirði um að sækja lög­boðið sam­þykki eigin þings,“ skrifar Kristinn. Hann segir jafn­framt „svaka­legt að frekar lítið ríki geti beitt fyrir sig slíkum hern­að­ar­mætti til að þjóna eigin ofbeld­is­hags­munum“.

Kristinn vísar til leið­ara í The New York Times, þar sem spurt sé: „hvers vegna hefur þú byrjað þetta stríð, herra for­seti?“ Að hans mati sé um eðli­lega spurn­ingu að ræða í ljósi þess að engar skýrar útskýr­ingar hafi verið gefnar á því hvernig stríðið eigi að þjóna hags­munum Banda­ríkja­manna. „Svarið er vita­skuld aug­ljóst,“ bætir hann við og segir þá sem von­ist eftir betri fram­tíð fyrir Írana og heim­inn eftir átökin geta „deyft þá von með því að líta til ann­ara stríða sömu árás­arafla á þess­ari öld“.

Í færsl­unni beinir Kristinn einnig sjónum að íslenskum stjórn­völdum og spyr: „Mun rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur for­dæma þetta stríð?“

Í seinni færslu sinni fjallar hann nánar um yfir­lýstan til­gang árásanna og vísar þar til Donald Trump. „Trump er skýr í að við­ur­kenna að til­gangur stríðs­ins sé valda­skipti,“ skrifar Kristinn og bendir á að slíkt hafi aldrei áður tek­ist með loft­árásum einum saman. Hann úti­lokar þó ekki að það gæti gerst í fyrsta sinn, en varar við alvar­legum afleið­ingum ef það mis­tekst.

„Ef það tekst ekki með gengd­ar­lausu sprengjuregni næstu daga og vikur hefur Trump val­kost­inn að við­ur­kenna árang­urs­leysi aðgerða, sum sé ósigur, eða senda land­her inn í Íran,“ segir Kristinn. Hann telur mikla hættu á að heim­ur­inn standi frammi fyrir „miklum skelf­ingum, mann­falli og flótta­manna­straumi“ og bætir við að fyrri reynsla bendi ein­dregið til þess að sú verði raunin.

Að lokum lýsir Kristinn von um að svart­sýnar spár hans ræt­ist ekki, en segir jafn­framt: „Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér en það eru engar hömlur á eyð­ing­ar­mætti mesta her­veldis heims og skugga­stjórn­endum þess í Ísrael.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu