Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Sjöundi dagur skógareldanna á Tenerife: „Og harmleikurinn er hvergi nærri búinn“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir.

Lítið lát er á skóg­ar­eld­unum á Tenerife en Anna Krist­jáns­dóttir upp­lýsir les­endur sína um fram­vindu mála í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni.

Skóga­eld­arnir á Tenerife hafa nú logað í sjö daga en sam­kvæmt Önnu Krist­jáns, fræg­asta íbúa eyj­ar­innar, eru ýmis jákvæð teikn á lofti. „Skóg­ar­eld­arnir hafa vissu­lega geisað hér í nærri viku, en eftir að hvass­viðrið á sunnu­dags­morg­un­inn lægði tókst björg­un­ar­liði að hemja verstu eldana, þó ekki alla þá sem enn eru stjórn­lausir.“

Anna segir þetta þó mjög sorg­legt mál en um 7 pró­sent eyj­ar­innar hafi orðið eldi að bráð og „og harm­leik­ur­inn er hvergi nærri búinn“. Bætti hún við að engar stað­festar fregnir hefðu borist enn af brunnum heim­ilum þó ein­hverji hafi birt ljós­myndir af slíku.

Anna bendir á hið gríð­ar­stóra flæmi sem eld­arnir hafa náð að vaða yfir. „Það er samt ljóst að skóg­ar­eld­arnir hafi náð yfir mjög stór lands­svæði, þó aðal­lega á hálend­inu og þá yfir þús­und metra hæð og upp í 2.400 metra hæð. Elds­hafið hefur nú náð yfir 13.300 hekt­ara og ummálið er yfir 90 kíló­metrar, en tólf sveit­ar­fé­lög hafa orðið fyrir skaða vegna eld­anna, öll á norð­ur­hluta eyj­ar­innar, eða í kringum háls­inn á önd­inni.“

Að lokum minn­ist hún á þann fjölda sem berst við eld­tung­urnar á degi hverjum en það er um 600 manns á jörðu niðri og um 25 flug­för. „En með mik­illi bar­áttu hefst það að lokum og við gam­al­kvenndin á suð­ur­hluta Tenerife eigum þá von eina að þeim tak­ist ætl­un­ar­verk sitt, að slökkva þessa hræði­legu skóg­ar­elda.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„Dagur 1470 – Sjöundi dagur skóg­ar­elda.

Það er erfitt að segja hlut­ina eins og þeir eru, en það eru samt ýmis jávæð teikn á lofti. Skóg­ar­eld­arnir hafa vissu­lega geisað hér í nærri viku, en eftir að hvass­viðrið á sunnu­dags­morg­un­inn lægði tókst björg­un­ar­liði að hemja verstu eldana, þó ekki alla þá sem enn eru stjórn­lausir.Þetta er samt virki­lega sorg­legt. Um það bil 7% eyj­ar­innar hafa orðið eldi að bráð og harm­leik­ur­inn er hvergi nærri búinn. Á mánu­dags­kvöldi höfðu þó engar stað­festar heim­ildir borist um brunnin heim­ili sam­kvæmt fréttum þótt ein­hverjir hafi sett út myndir af brunnum húsum, en þær fréttir eru óstað­festar, enda reynir slökkvi­lið allt sem í þeirra valdi stendur að bjarga húsum sem eru innan bruna­svæð­anna.Það er samt ljóst að skóg­ar­eld­arnir hafi náð yfir mjög stór lands­svæði, þó aðal­lega á hálend­inu og þá yfir þús­und metra hæð og upp í 2.400 metra hæð. Elds­hafið hefur nú náð yfir 13.300 hekt­ara og ummálið er yfir 90 kíló­metrar, en tólf sveit­ar­fé­lög hafa orðið fyrir skaða vegna eld­anna, öll á norð­ur­hluta eyj­ar­innar, eða í kringum háls­inn á önd­inni.Hér sunn­an­heiða verðum við ekki vör við neitt þó að því frá­töldu að tals­vert sót barst hingað ofan af hálend­inu aðfar­arnótt sunnu­dags­in­sEnn sem komið er hafa engin mann­tjón orðið og er það vel, en hvað ger­ist næstu dag­ana? Það rigndi lít­ils­háttar í fyrr­inótt en engan­veg­inn nóg til að slökkva í eld­unum­l­Yfir 600 manns berj­ast við eldana á jörðu niðri auk rúm­lega 25 flug­fara sem skvetta vatni á önd­ina án mik­ils árang­urs, en með mik­illi bar­áttu hefst það að lokum og við gam­al­kvenndin á suð­ur­hluta Tenerife eigum þá von eina að þeim tak­ist ætl­un­ar­verk sitt, að slökkva þessa hræði­legu skóg­ar­elda.—–Uppfært á þriðju­dags­morgni klukkan 09:05. Bruna­svæðið er nú orðið 14.878 hekt­arar eða 7,3% af flat­ar­máli Tenerife.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar