Ný leit að Madeleine McCann er formlega hafin, 18 árum eftir að breska stúlkan hvarf. Lögreglan sést nú grafa í yfirgefnum bóndabæ.
Þýskir rannsóknaraðilar, vopnaðir skóflum og sláttuorfum, leita nú á svæði á milli Praia da Luz í Portúgal, þar sem Madeleine, þá þriggja ára, hvarf 3. maí 2007, og húss nærri orlofsstaðnum þar sem sá grunaði í málinu, Christian Brueckner, bjó áður.
Ný ábending
Heimildarmaður innan lögreglunnar í Portúgal staðfesti að aðgerðir vikunnar fælu í sér leit á landi „til að leita að vísbendingum um líkamsleifar Madeleine“. Lögregla fékk að sögn nýjar upplýsingar á síðasta ári um möguleg ný sönnunargögn frá Praia-svæðinu, tengd þeim tíma sem Madeleine hvarf.
Samkvæmt fjölmiðlum „biðja þýsk yfirvöld til guðs um árangur“ í málinu eftir að ný ábending barst.
Nýju upplýsingarnar virðast hafa komið fram í kjölfar réttarhalda yfir Christian Brueckner, sem þýskir saksóknarar telja að hafi verið aðalmaðurinn á bak við hvarf Madeleine. Brueckner afplánar nú sjö ára fangelsisdóm í Þýskalandi fyrir nauðgun á aldraðri konu á heimili hennar í Praia da Luz árið 2005. Hann hefur neitað allri aðild að hvarfi Madeleine.
Á mánudag lokuðu portúgölsk yfirvöld af malarvegi á svæðinu þar sem leitin fer fram, og tjöld voru reist í Atalaia-hverfinu þar sem Brueckner bjó eitt sinn í litlu húsi.
Ríkissaksóknari í Braunschweig í Þýskalandi segir í yfirlýsingu:
„Leit er í gangi í Portúgal sem hluti af rannsókn málsins um Madeleine McCann. Aðgerðirnar eru gerðar með gagnkvæmri réttaraðstoð og í samstarfi við portúgölsk lögregluyfirvöld, með stuðningi frá þýsku alríkislögreglunni.
Frekari upplýsingar um málið verða ekki veittar að svo stöddu.“
Leita í yfirgefnu bóndabýli
Þýskir rannsóknarlögreglumenn eru nú staddir inni í aðalhluta yfirgefins bóndabýlis og sjást öðru hvoru koma út til að tæma fötur fullar af mold og braki. Aðrir rannsakendur eru að taka myndir af hálfföllnum útihúsum á svæðinu. Leitarteymið er einnig að grafa og hreinsa undirgróður í kringum yfirgefnar byggingar.
Ekki bjartsýnn
Breskur maður sem býr nálægt leitarsvæðinu segir að hann sé „ekki viss“ um hvað þeir geti fundið núna.
Tony Gallagher, sem hefur búið í svæðinu í 20 ár, segir að það hafi þegar verið leitað þarna þegar Madeleine hvarf fyrst.
„Allir vilja fá svör, en það hefur líka verið eytt miklum peningum í 20 ár án raunverulegra niðurstaðna,“ sagði hann við Sky News.
„Ég veit fyrir víst að þeir leituðu hér áður. Ég er ekki viss um hvað þeir vonast til að finna.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir