Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

„Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur engu efn­is­legu við fyrra svar ráðu­neyt­is­ins að bæta og tjáir sig ekki um hvað fór fram á umræddum fundi.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra Svan­hildur Hólm sat ráð­herra­fund Rubio fyrir hönd Ísland Mynd: NICOLAS TUCAT / AFP

Utan­rík­is­ráðu­neytið vill ekki svara því hvort íslensk stjórn­völd taki undir umdeildar full­yrð­ingar Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, um að rót­tækir vinstri­s­inn­aðir öfga­hópar séu meðal helstu hryðju­verkaógna sam­tím­ans.

Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við ítar­legum fyr­ir­spurnum Mannlífs um afstöðu rík­is­stjórn­ar­innar í kjöl­far alþjóð­legs ráð­herra­fundar sem Rubio boð­aði til 15. júlí undir yfir­skrift­inni The Resurgence of Political Ter­r­orism.

Mannlíf spurði meðal ann­ars hvort rík­is­stjórnin tæki undir mat Rubio á Antifa og öðrum vinstrisinn­uðum hópum, hvort Ísland hefði lýst yfir stuðn­ingi við áherslur fund­ar­ins og hvort fund­ur­inn hefði haft áhrif á sam­starf Íslands og Banda­ríkj­anna á sviði hryðju­verka­varna.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir:

„Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur engu efn­is­legu við fyrra svar ráðu­neyt­is­ins að bæta og tjáir sig ekki um hvað fór fram á umræddum fundi.“

Ráðu­neytið ítrekar jafn­framt fyrri skýr­ingu sína á þátt­töku Íslands.

„Sendi­herra Íslands sótti fund­inn fyrir hönd Íslands til að fylgj­ast með umræðum.“

Áður hefur utan­rík­is­ráðu­neytið stað­fest við Mannlíf að það hafi verið Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, sendi­herra Íslands í Washington, sem sat fund­inn fyrir Íslands hönd, en ekki utan­rík­is­ráð­herra.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu var sendi­herr­anum falið að sækja fund­inn til að fylgj­ast með umræðum og hefur ráðu­neytið ekki gefið til kynna að Ísland hafi lýst yfir stuðn­ingi við þær áherslur sem þar voru kynntar. Jafn­framt hefur það ekki svarað því hvort full­trúi Íslands hafi gert athuga­semdir við mál­flutn­ing Rubio eða hvort rík­is­stjórnin deili grein­ingu hans á vinstrisinn­uðum öfga­hópum.

Fund­ur­inn vakti athygli þar sem Rubio hélt því fram að end­ur­vakn­ing póli­tískra öfga­hópa á vinstri vængnum væri alþjóð­leg ógn sem ríki þyrftu að vinna saman gegn. Ummælin hafa verið umdeild, meðal ann­ars í ljósi þess að ýmsar rann­sóknir hafa bent til þess að hægri öfga­hópar hafi staðið að fleiri ban­vænum hryðju­verkum en vinstri­s­inn­aðir hópar í Banda­ríkj­unum á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“