Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Þór Guðnason hefur lagað sjálfan sig: „Ég var með mikið af sárum á sálinni“

Þór Guðnason ræðir við Sölva Tryggvason
Þór Guðnason ræðir við Sölva Tryggva­son

Þór Guðnason, yoga­kenn­ari, hefur sterka skoðun á fíkni­efnum.

Þór Guðnason einka­þjálf­ari og yoga­kenn­ari segir tíma­bært að opna umræð­una um hug­víkk­andi efni. Þór, sem er nýjasti gest­ur­inn í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar, vinnur með hug­víkk­andi efni og aðstoðar fólk með notkun þeirra.

„Ég hef verið að vinna við að hjálpa fólki síðan ég var 22 ára gam­all. En ég hef í raun þjáðst sjálfur á löngum tíma­bilum og sé núna að ég skamm­að­ist mín fyrir mína eigin sögu og mína eigin líðan. Það væri rangt af mér að halda því leyndu hvað hjálp­aði mér mest í að finna aftur frelsið. Fyrir mér er það sið­ferði­lega rétt að hjálpa fólki að tengj­ast nátt­úr­unni aftur og þess vegna tala ég um þetta opin­skátt, þó að mörg af þessum efnum séu enn ólög­leg. Ef ein­hver vill loka mig inni fyrir að segja satt um þetta opin­ber­lega verður bara að hafa það. Ég tek fulla ábyrgð á því sem ég geri og vil ekki fela það. Ég hef unnið með fólki úr lög­regl­unni og veit að lög­reglu­menn og -konur eru gott fólk og hafa engan áhuga á að stoppa það þegar verið er að hjálpa fólki. Í grunn­inn hef ég enga sér­staka trú á lög­leið­ingu á þessum efnum, en það á að afglæpa­væða þau,“ sagði Þór við Sölva í hlað­varps­þætt­inum og hélt jóga­kenn­ar­inn áfram:

„Það getur ekki verið rétt að banna mér að týna plöntur sem vaxa úti í garði og nota þær til að aðstoða fólk. Ég hef ferð­ast um allan heim til að reyna að laga sjálfan mig og finna ham­ingj­una. Í Himala­yja fjöllin, frum­skóg­ana í Perú, til Indlands, í kulda­með­ferðir með Wim Hof og svo fram­vegis. En þrátt fyrir alla leit­ina upp­lifði ég samt tíma­bil af miklu þung­lyndi og þján­ingu. Auðvitað skil­aði öll þessi sjálfs­vinna miklu, en ég þurfti mjög öflug verk­færi og þar koma hug­víkk­andi efni og plöntu­kenn­arar inn. Á end­anum átt­aði ég mig á því að ég var að reyna að end­ur­heimta sjálfan mig og ná að losna undan alls kyns áföllum og skil­yrð­ingum. Ég var með mikið af sárum á sál­inni, gömul áföll og fleira, sem ég hef loks­ins náð að sjá almenni­lega og fengið tæki­færi til að laga sjálfan mig. Ég hef líka fengið að melta alla skömm­ina sem ég gekk með árum saman og er loks­ins búinn að upp­lifa alvöru frelsi.“

Hægt er að hlusta á þátt­inn hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar