Í nýju viðtali ræðir dansarinn og leikkonan Gunnella Hólmarsdóttir meðal annars um æsku sína í Breiðholti en hún ólst upp í Kríuhólum. „Ég er algjör gettópía og það hafði mikil áhrif á mig. Ég á rosalega flottan og góðan vinahóp vinkvenna sem fylgja mér enn í dag, algjörir englar,“ sagði Gunnella í viðtal á RÚV. „Við fengum þetta einstaka tækifæri til að alast upp í Hólunum sem að er virkilega karakterskapandi.“
Hún flutti þó í 10. bekk til Keflavíkur og var dansinn númer eitt hjá henni. „Lífið snerist algjörlega um dansinn.“
Gunnella er um þessar mundir að sýna Hvað ef sósan klikkar og er hún sýnd í Tjarnarbíói og hefur hún slegið í gegn. Frábærar viðtökur, nú er búið að bæta við fjórum aukasýningum og þetta hefur verið þvílíkt ævintýri,“ sagði Gunnella en sýningin er skrifuð út frá rannsóknarspurningu um áhrif matreiðslubóka á taugaáföll kvenna. Gunnella fékk sjálf taugaáfall árið 2016 og ákvað í framhaldi af því að hugsa betur heilsuna og hóf að stunda jóga og göngu.
„Ég fjárfesti í heilsunni og keypti mér geggjaða gönguskó sem ég er rosa mikið í. Dansinn skiptir mig miklu máli en mér finnst alveg æðislegt að fara út í náttúruna með hundinn Fróða, taka góðar göngur. Mér finnst ég fá bestu hugmyndirnar í göngutúrum eða í sturtu svo mér fannst alveg tilvalið að hvetja fólk til að fara út að labba.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir