Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Rótgróið viðhorf að hampa dugnaði

Jón Atli Benediktsson er rektor HÍ.
Jón Atli Bene­dikts­son er rektor HÍ.

Í umræðum um yfir­standandi kjara­deilur Eflingar og Reykja­víkurborgar hefur farið æ meira fyrir þeirri skoðun að ekki beri að meta menntun til launa. Nú síðast tjáði Kári Stef­ánsson þá skoðun sína á Pírata­spjallinu við góðar undir­tektir. Hvað finnst forsvars­fólki háskóla­fólks um þessa umræðu? Mannlíf leitaði svara við því hjá Jóni Atla Benedikts­syni, rektor Háskóla Íslands.

„Ég held að við séum á villigötum sem samfélag ef við erum farin að trúa því að menntun skipti ekki máli á vinnu­markaði og eigi ekki að meta til launa,“ segir hann. „Að mínu mati hefur frekar vantað upp á að háskóla­menntun sé metin almennilega til launa en hitt. Fyrir ekki svo löngu síðan birti Hagstofan tölur sem sýndu að þeir sem hafa eingöngu lokið grunn­menntun á borð

við stúdents­próf séu að jafnaði með 86% af heildar­tekjum þeirra sem hafa lokið háskóla­prófi. Nú skal ég ekki segja um hvort þetta sé lítill eða mikill munur. En Hagstofan benti á sama tíma á að þetta sé minni munur en í nokkru öðru Evrópu­ríki. Þetta er áhyggju­efni. Við byggjum ekki upp blómlegt samfélag nema við höfum yfir að búa vel menntuðu og framsæknu fólki. Ég held að við ættum miklu frekar að huga að því hvernig hægt er að meta menntun enn frekar með sann­gjörnum hætti til launa heldur en að gera lítið úr mikilvægi háskóla­menntunar.“

Spurður hvort hann sé sammála Þórunni um að það sé þjóðar­íþrótt á Íslandi að tala menntun niður segir Jón Atli: „Það hefur lengi verið rótgróið viðhorf hér á landi að hampa dugnaði umfram öðru. Það þarf sannarlega ekki háskóla­próf til að sýna dugnað í vinnu. Tölurnar sem ég vitnaði til áðan gefa til kynna að við séum kannski viljugri en aðrar þjóðir að horfa til fleiri þátta en háskóla­menntunar þegar laun eru metin. Nú er nátt­úrlega, og kannski eðlilega, mikil umræða um lægstu launin og skiljanlegt að forystu­fólk stéttar­félaga láglaunahópa berjist fyrir bættum kjörum sinna félags­manna. En það er varasamt að etja fólki eða hópum saman. Auðvitað á að borga fólki mann­sæmandi laun, til dæmis fyrir umönnunar­störf, en það á líka að meta menntun til launa. Þetta eru ekki ósamrýmanleg sjónarmið, að mínu mati.“

„Ég held að við séum á villi­götum sem sam­fé­lag ef við erum farin að trúa því að menntun skipti ekki máli á vinnu­mark­aði og eigi ekki að meta til launa.“

Gröfum undan okkur sjálfum

Í umræðunni er alltaf talað um að háskóla­menntað fólk þurfi hærri laun vegna taps á lífeyris­réttindum á meðan það er í námi og skulda­baggans sem fylgir náms­lánunum, er menntun sem slík þá einskis virði?

„Auðvitað þarf að taka tillit til þess að langt háskólanám hefur áhrif á ævitekjurnar,“ segir Jón Atli. „Fólk er að mestu leyti tekju­laust á meðan á námi stendur og greiðslu­byrði námslána getur verið há. En fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um það hvers konar samfélag við viljum skapa. Ef við viljum stíga skrefið frá því að vera algjör­lega háð sjávar­útvegi, stóriðju og nú síðast ferða­þjónustu yfir í að vera samfélag sem byggir á nýsköpun og þekkingu, rann­sóknum og vísindum þá krefst það einfald­lega ákveðinnar forgangs­röðunar. Það kostar ákveðna fjár­festingu í menntun og við sjáum að nágranna­þjóðir okkar fjárfesta markvisst í háskóla­stiginu einmitt til að tryggja slíka fram­tíðarsýn. Ef við gerum lítið úr menntun hvað laun varðar, þá gröfum við undan þessari fjár­festingu og gröfum hreinlega undan okkur sjálfum og hagsmunum komandi kynslóða.“

Sjá einnig: Þjóðar­íþrótt að tala gildi menntunar niður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi