Anna Marsibil Clausen, jafnan kölluð Anna Marsý, ritstjóri hlaðvarpa á RÚV, greinir frá því að hún hafi nýverið trúlofast unnusta sínum, Eiríki Sigurðasyni. Gleðin hafi þó fljótt breyst í örvæntingu þegar hún týndi trúlofunarhringnum sínum á Akureyri.
Frá þessu segir Anna í Facebook-færslu þar sem hún biðlar til fólks um aðstoð við leitina.
„Nú fyrir skömmu skellti Eiríkur sér á skeljarnar og á ég sagði já. Jibbí!“ skrifar hún.
Hún segir síðan að skömmu síðar hafi hún týnt hringnum.
„Nema hvað, adhd kvendinu sem ég er tókst að týna trúlofunarhringnum mínum í kvennaklefa World Class við Strandgötu á Akureyri fyrr í dag.“
Anna segir þó að einnig sé mögulegt að hringurinn hafi glatast við veitingastaðinn Berlín þar sem hún hafi borðað salat.
Hún tekur atvikinu með húmor, þrátt fyrir allt og segir:
„Af þessu lærum við tvennt: annars vegar að mér er ekki treystandi fyrir fallegum munum og hinsvegar að hreyfing og hollt mataræði borgar sig engan veginn!“
Hún biðlar til fólks á Akureyri að fylgjast með og deila færslunni.
Um er að ræða fléttaðan gullhring frá Orra Finn með glærum steini. Hægt er að skila hringnum í móttöku World Class við Strandgötu eða hafa samband við Önnu beint.
Hún heitir jafnframt góðum fundarlaunum þeim sem finnur hringinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir