Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Magga Frikka náði loksins að smitast af Covid: „Ég var eiginlega búin að gefast upp“

Baráttu­konan og ritstýran Margrét Friðriks­dóttir náði loksins að smita sjálfa sig af Covid-19 en hún hefur síðustu daga verið að reyna að smitast en illa gengið. Yngri dóttir hennar er smituð og hefur Margét reynt allt til að smitast af dóttur sinni, en án árangurs.

„Covid hefur nú yfirtekið heimilið og ég náði loks að smitast en það hefur komið skýrt fram hjá mér að ég vildi fá náttúru­lega mótefnið sem er best og nú er ónæmis­kerfið að vinna á veikindunum. Þetta tók sinn tíma og var ég eiginlega búin að gefast upp á því að reyna smitast og farin að sætta mig við að ég myndi sennilega ekki ná því. Ég gat varla verið útsettari fyrir veirunni hér á heimilinu með tvo Covid smitaða, en það tókst að lokum,“ segir Margrét í færslu á Facebook.

Margrét fullyrðir að hún geti ekki smitað aðra af Covid-19 því hún sé sjálf ónæm fyrir sjúk­dómnum. „Ég er greini­lega ein af þeim. Þetta þýðir ef ég get ekki smitast þá get ég heldur ekki smitað útfrá mér,“ segir Margrét.

Í samtali við Mannlíf lýsti Margrét aðferðum sínum við að reyna að smitast af Covid af dætrum sínum. „Merkilegast er að ég er búin að bera reyna smitast en ekkert gengur og eldri stelpan mín smitast ekki heldur, erum allar óbólusettar. Ég er einmitt búin að vera drekka úr glasinu hennar og láta hana anda ofan í mig en ekkert gengur,“ sagði hún.

Margrét hefur skráð sig í alþjóð­lega samanburðar­rannsókn þar sem reynt verður að finna út hvor hópurinn er betur varður gegn kórónu­veirunni, bólu­settir eða óbólusettir. Varla þarf að taka það fram að Margrét tilheyrir síðari samanburðar­hópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólu­setningum hér á landi gegn veirunni skæðu.

Til að berjast gegn sótt­varnar­aðgerðum og bólu­setningunum stofnaði Margrét vefsvæðið frettin.is sem á dögunum hlaut skráningu sem fjöl­miðill. Hún tekur nú þátt í þessari alþjóð­legu rannsókn og samkvæmt henni má hún alls ekki láta bólusetja sig gegn Covid-19.

Í nýjustu færslu sinni lýsir Margrét því hvernig henni leið eftir að hafa loksins náð sér í Covid-19. Við skulum gefa henni orðið aftur:

„Það var á föstudags­kvöldið sem mér fór að líða skringi­lega, var mjög kalt og fór því í heitt bað en þrátt fyrir það var mér enn kalt og drakk því þrjá bolla af heitu sítrónutei. En allt kom fyrir ekki, ég var að krókna úr kulda. Klæddi mig í hlý föt, því mig grunaði að ég væri komin með veiruna. Þegar ég vaknaði um morguninn fann ég fyrir hálsbólgu og höfuðverk og ákvað því að fara í sýnatöku,“ segir Margrét og bætir við:

„Það er alveg með ólíkindum að þurfa segja frá því að undan­farið  hef ég verið að hjálpa fólki sem var orðið mikið veikt og á leið á gjörgæslu þegar það bað mig um að útvega sér Ivermektín. Allir þeir sem fengu lyfið höfðu samband innan fárra daga og þökkuðu fyrir hjálpina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum