Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

„Ég spyr, frú for­seti: Frá hverju er verið að taka tíma?“

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son Er fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Mynd: Víkingur

Sigurður Ingi Jóhanns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gagn­rýndi rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur harð­lega fyrir lít­inn fjölda stjórn­ar­frum­varpa og kall­aði eftir því að frum­varp um lagar­eldi og fisk­eldi yrði lagt fram á Alþingi.

Sigurður Ingi ræddi störf þings­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær. Hann benti á að þing­fundir síð­ustu vikna hefðu almennt verið stuttir og að til­tölu­lega fá stjórn­ar­frum­vörp væru komin fram.

Að sögn Sigurðar Inga hafa aðeins 29 mál komið frá rík­is­stjórn­inni á yfir­stand­andi lög­gjaf­ar­þingi, að fjár­lögum með­töldum, auk fimm þings­á­lykt­un­ar­til­lagna. Hann sagði að umræður um lög­gjaf­ar­mál hefðu því almennt gengið hratt fyrir sig.

Sigurður Ingi beindi sér­stak­lega sjónum að lagar­eld­is­frum­varp­inu og gagn­rýndi þau rök að málið væri svo umfangs­mikið að erfitt væri að koma því fyrir á dag­skrá þings­ins.

„Ég spyr, frú for­seti: Frá hverju er verið að taka tíma?“ sagði Sigurður Ingi.

Hann sagði fisk­eldi mik­il­væga atvinnu­grein sem gæti skilað um 70 millj­örðum króna í útflutn­ings­tekjur og væri talið eitt af stærri tæki­færum þjóð­ar­innar til auk­innar verð­mæta­sköp­unar. Miklar fjár­fest­ingar væru fyr­ir­hug­aðar bæði í land­eldi og sjó­kvía­eldi en óvissa um lagaum­hverfið héldi aftur af grein­inni.

Sigurður Ingi sagði ekki stand­ast að skortur á tíma Alþingis kæmi í veg fyrir að málið yrði tekið fyrir. Hann skor­aði á for­seta Alþingis og atvinnu­vega­nefnd að beita sér fyrir því að málið yrði tekið upp ef rík­is­stjórnin legði það ekki fram.

„Ég spyr aftur, frú for­seti: Frá hverju tekur þetta mál tíma hér í þing­inu?“ sagði Sigurður Ingi.

Sigurður Ingi benti einnig á að nefndin hefði aðeins eitt mál frá rík­is­stjórn­inni til umfjöll­unar í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi