Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sigurjón segir bankana reka okurstefnu og „éta útsæðið“

Á sama tíma og fyr­ir­tæki glíma við háan vaxta­kostnað segir Sigurjón Þórð­ar­son bank­ana taka æ stærri hluta af verð­mæta­sköpun þeirra.

Vaxtamunur bankanna
Vaxta­munur bank­anna Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins, gagn­rýndi vaxta­mun og gjald­töku bank­anna í ræðu á Alþingi. Mynd: Víkingur

Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins, gagn­rýndi harð­lega vaxta­mun og gjald­töku íslensku bank­anna í ræðu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Sagði hann hagnað bank­anna hafa náð áður óþekktum hæðum á sama tíma og fyr­ir­tæki og heim­ili glímdu við háan vaxta­kostnað.

Sigurjón sagði gróða bank­anna mik­inn á alla mæli­kvarða og langt umfram eigin mark­mið þeirra um arð­semi eigin fjár. Þá sagði hann vaxta­mun íslensku bank­anna ævin­týra­lega mik­inn og marg­faldan á við það sem þekk­ist meðal ann­ars í Færeyjum.

„Það er eðli­legt að fólk spyrji: Hvaðan kemur allur þessi hagn­aður? Jú, hann kemur auð­vitað frá við­skipta­vin­unum,“ sagði Sigurjón.

Hann sagði það ekki fara saman að hagn­aður fjár­mála­kerf­is­ins væri auk­inn veru­lega á sama tíma og rekstr­ar­skil­yrði fyr­ir­tækja, sem héldu atvinnu­líf­inu gang­andi, yrðu sífellt erf­ið­ari. Fjár­mála­kerfið tæki að hans mati æ stærri hluta af verð­mæta­sköpun fyr­ir­tækja, meðal ann­ars í bygg­ing­ar­iðn­aði.

Sigurjón beindi jafn­framt sjónum að vaxta­stefnu Seðla­banka Íslands og sagði stjórn­endur bank­anna eiga að taka undir gagn­rýni Flokks fólks­ins á hana.

„Þeir ættu að sýna ábyrgð og kunna sér maga­mál, sér­stak­lega á þeim tímum þegar Seðla­bank­inn skrúfar upp vexti fram úr öllu hófi,“ sagði hann.

Sigurjón sagði mik­il­vægt að bankar væru reknir með hagn­aði og ábyrgð en taldi núver­andi stöðu ganga of langt. Hann nefndi sér­stak­lega Lands­bank­ann og sagði hreinan vaxta­mun rík­is­bank­ans vera á fjórða pró­sent það sem af væri árinu.

Að hans mati ættu stjórn­völd að setja Lands­bank­anum skýra eig­enda­stefnu um vaxta­mun og kostnað.

„Sú okur­stefna sem er nú uppi er óábyrg,“ sagði Sigurjón og var­aði við því að verði stefn­unni haldið óbreyttri muni bank­inn „éta útsæðið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“