Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ástríðuglæpur á Egilsstöðum – Börn voru á staðnum þegar sjómaður var skotinn af lögreglu

skotárás
skotárás Mynd: Gunnar Gunnarsson

Skotárásin á Egils­stöðum í gær­kvöldi tengd­ist ást­ar­málum. Byssu­mað­ur­inn æddi inn á heim­ili fyrr­ver­andi eig­in­manns kær­ustu sinnar, vopn­aður kröft­ugum loft­riffli. Börn voru á heim­il­inu.

Lög­reglan á Aust­ur­landi skaut mann­inn við íbúð­ar­hús á Egils­stöðum í gær­kvöld. Maðurinn var fluttur með sjúkra­flugi til Reykja­víkur en ekki er vitað um líðan hans.

Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að byssu­mað­ur­inn á Egils­stöðum í gær­kvöldi, hafi farið inn á heim­ili fyrr­ver­andi eig­in­manns kær­ustu sinnar, í þeim til­gangi að skjóta hann. Börn kær­ustu hans voru á heim­il­inu.

Maðurinn er rúm­lega fer­tugur sjó­maður og ekki þekktur fyrir ofbeldi. Hefur hann verið í ást­ar­sam­bandi við kær­ustu sína í rúmt ár en heim­ildir Mannlífs herma að lög­reglan hafi verið kölluð á heim­ili þeirra fyrr í sumar. Maðurinn hefur í gegnum tíð­ina verið mik­ill áhuga­maður um byssur og átt fjöl­mörg skot­vopn.

Atvikið átti sér stað laust fyrir klukkan 11 í gær­kvöld. Hafði lög­reglan verið kölluð til eftir að skot­hvellir heyrð­ust í göt­unni. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs, skipt­ist lög­reglan á skotum við mann­inn eftir að hafa ítrekað skipað honum að leggja frá sér byss­unni. Því hlýddi mað­ur­inn ekki og því var hann skot­inn. Stóð umsát­urs­á­stand yfir í um hálf­tíma.

Maðurinn hafði gengið ber­serks­gang í efstu götu Egils­staða, Dalseli og skotið úr öfl­ugum loft­riffli á nokkur hús í göt­unni. Íbúi eins húss­ins var staddur í bíl­skúrnum þegar hann heyrir hvelli fyrir utan og fór að athuga málið. Sá hann þá að búið var að sund­ur­skjóta rúður í húsi hans. Lög­reglan hafi beðið mann­inn um að leggja niður vopn sem hann varð ekki við og því hafi lög­reglan skotið hann í kvið­inn. Sá vitnið blóð leka niður göt­una. Var mað­ur­inn á lífi er hann var fluttur með sjúkra­flugi.

Sam­býl­is­kona skot­manns­ins hafði sam­band við blaða­mann Mannlífs og gerði athuga­semd við orða­lag í frétt­inni, að kalla sam­bandið nokkuð storma­samt og hefur það verið fjar­lægt og konan beðin afsök­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu