Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Þórólfur bað Kára um hjálp við greiningu sýna: „Við erum vinir, félagar, fóstbræður“

Þórólfur Guðnason og Kári Stefánsson
Þórólfur Guðnason og Kári Stef­áns­son

Íslensk erfða­grein­ing ætlar að létta undir með veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans með því að taka við allri grein­ingu inn­an­lands­sýna frá og með deg­inum í dag. Kári Stef­áns­son segir Þórólf Guðnason hafa hringt í sig í gær með þessa bón. Hann segir það út í hött að Land­spít­al­inn ráði ekki við grein­ingu sýna.

Þetta kemur fram á RÚV. Mikið álag hefur verið á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans und­an­farið og er fjöldi sýna langt fram yfir getu deild­ar­innar, jafn­vel þótt unnið sé langt fram eftir nóttu við grein­ingar. Þetta segir Guðrún Svanborg Hauks­dóttir, yfir­læknir deild­ar­innar. Hún segir skafl af sýnum hafa mynd­ast und­an­farna daga.

Þórólfur Guðnason, sótt­varn­ar­læknir, óskaði eftir aðstoð Íslenskrar erfða­grein­ingar við grein­ingu sýn­anna í þeirri stöðu sem nú er uppi. Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, svar­aði kalli Þórólfs en seg­ist í sam­tali við RÚV vona að fyr­ir­tækið sé ekki að brjóta lög með því að veita aðstoð sína. Með því skýtur hann föstum skotum á Per­sónu­vernd, sem úrskurð­aði að fyr­ir­tækið hefði brotið per­sónu­vernd­ar­lög með vís­inda­rann­sókn í far­aldr­inum.

„Og það eina sem við getum gert niður í Vatns­mýri er að von­ast bara til þess að þeirri nið­ur­stöðu að við séum ekki að brjóta lög með því að hjálpa. Við vonum að það fari að renna af Per­sónu­vernd og hún fari að horfa á þetta sam­fé­lag með sömu augum og aðrir,“ segir Kári.

Kári segir að í svona far­sótt eigi allir að leggja sitt af mörkum. Það sé allt í lagi að Land­spít­al­inn leiti á náðir einka­að­ila, en honum þyki hins­vegar ekki gott að Land­spít­al­inn sé ekki búinn að skipu­leggja sig betur „til þess að geta höndlað þetta“.

„Það er ein­hvers konar stjórn­un­ar­vandi í þessu kerfi og raun­veru­lega út í hött að það skuli ekki vera búið að gera eitt­hvað í þessu á tveimur árum sem stjórn­völd hafa haft til að skipu­leggja þetta,“ segir Kári.

Þegar frétta­maður RÚV spyr seg­ist Kári hafa fengið sím­tal frá Þórólfi Guðn­a­syni vegna máls­ins í gær­kvöldi.

„Sko Þórólfur hringdi í mig í gær­kvöldi, við tölum saman, nokkuð oft. Við erum vinir, félagar, fóst­bræður og það var ekki mögu­leiki fyrir okkur í þessu ástandi að segja annað en já,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas