Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Fanney Hrund vildi ekki verða þriðja kynslóð skúffuskálda: „Skrifa þú og gerðu eitthvað við það”

Blek­bóndinn og lögfræðingurinn Fanney Hrund Hilmars­dóttir sem býr að Fjarka­stokki í Rangár­þingi Ytra er spjall­vinur Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni í Land­búnaðar­ráðherra Mannlífs. Fanney hefur nýverið gefið út bókina Fríríkið sem er fyrsta bókin í fjögurra bóka seríu.

„Það sem gerist eiginlega þarna á fjórða ári í lögfræðinni er að ég kynnist í réttar­heimspeki kenningu réttar­heim­spekingsins John Rawls um fávísis­feldinn,“ segir Fanney Hrund.

Hún varð eiginlega hugfangin af þeirri kenningu, eða fyrirbæri, sem felur í sér í stuttu máli að þeir sem leggjast undir fávísis­feldinn tapa sjálfs­vitundinni.

„Þeir vita ekki undir honum af hvaða kyni þeir eru, aldri, stöðu, stétt, o.s.frv. og í því ástandi er þeim gert að skrifa grunnlög samfélagsins og það hefur tvennt í för með sér; annarsvegar það að þeir geta ekki tekið sjálfs­miðaða ákvörðun í laga­setningunni; ekki látið eigin hag ráða för. Hinsvegar það að þeir verða að ígrunda sérstak­lega stöðu allra samfélags­þegna því þeir vita sjálfir ekki hverjir þeir eru þegar feldurinn kemur af. Og Rawls fékk ákveðna gagnrýni á þessa kenningu á sínum tíma vegna þess að hún er auðvitað óraunhæf, hann er töfra­fyrirbæri þessi feldur en mér fannst svolítið ódýrt að afgreiða hana með þeim hætti. Ég fór að hugsa um leiðir til þess að koma þessu einhvernveginn nær fólki mögulega, þessum boðskap og þá kannski einna helst þessum yngri kynslóðum og úr varð hugmynd að veröld; ævintýra­veröldinni Dreym.“

Þegar eigin­manni Fanneyjar bauðst að fara til náms erlendis ákváðu þau að víkka sjóndeildar­hringinn með því að ferðast um Afríku og Asíu, þar sem þau lentu í ýmsum ævintýrum, áður en þau hófu árs langa dvöl sína í Ástralíu. Ferða­lagið og dvölin gerði það svo að verkum að þessi heimur sem Fanney skrifar um stækkaði ört og hún upplifði að sjálf kæmi hún að nokkru leyti undan fávísis­feldi.

„ekki gera sömu mis­tök og ég gerði“

„Mörgum árum síðar þá hafði þessi heimur stækkað svo mikið innra með mér að mér fannst ég eiginlega verða að gefa þessu tækifæri og þar spilaði líka inni í að bæði mamma mín og amma mín höfðu sagt við mig að ég mætti „ekki gera sömu mistök og ég gerði“, skrifað þú og gerðu eitthvað við það!” Þær eru báðar svokölluð skúffu­skáld. Ég vildi ekki vera þriðja kynslóð kvenna í þeirri stöðu.

Ég fór að byggja upp þennan heim, undirbúa það og eyddi þessu ári í það sem að ég gerði mér fljótt grein fyrir því að kallaði á fjórar bækur. Fyrsta bókin er Fríríkið sem kom út núna í haust og er svona fyrir börn á öllum aldri. Ég held að það sé mjög mikilvægt að reyna að vera bernskur sem lengst.

Ég ákvað það að þessi heimur væri orðinn það umfangs­mikill og það stór að ég treysti mér ekki til að gera eins og Stephen King sem bara svona veður af stað og sér hvert penninn dregur hann, ég þorði því ekki. Þú ert að skapa heilan heim, fantasíu­veröld.“

Viðtal Guðna Ágústs­sonar við Fanney er í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt