Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fyrrverandi hershöfðingjar hjálpa Palestínumönnum við ólífutínslu

„Við verðum að reyna að leysa þetta í sam­ein­ingu með Palest­ínu­mönnum“

Ólífutré brennur
Ólífutré brennur Sjálf­boða­liðar slökkva eld í ólífu­tré á Vest­ur­bakk­anum, sem ólög­legir land­nemar kveiktu. Mynd: AHMAD GHARABLI / AFP

Um 30 hátt­settir fyrr­ver­andi yfir­menn í ísra­elska hernum, þar á meðal sex hers­höfð­ingjar, tóku sig saman á þriðju­dag til að aðstoða palest­ínska bændur við ólífu­tínslu á Vest­ur­bakk­anum. Með þessu vilja þeir sýna sam­stöðu með bænd­unum vegna auk­ins ofbeldis öfga­fulls ólög­legs land­töku­fólks gegn Palest­ínu­mönnum.

Hópurinn aðstoð­aði bændur við ólífu­tínslu nærri þorp­inu Qusra. Eyal Ben-Reuven, fyrr­ver­andi hers­höfð­ingi, segir að hann hafi byrjað að skipu­leggja hóp­inn fyrir nokkrum mán­uðum vegna auk­inna árása land­töku­fólks á Palest­ínu­menn.

„Þegar ég sé hvað er að ger­ast hér og hvernig þessir menn ráð­ast á konur og börn, þá minnir það mig á sögur sem for­eldrar mínir sögðu mér frá þeim tíma þegar gyð­ingar urðu sjálfir fyrir ofsóknum,“ sagði Ben-Reuven. Hann líkti árás­unum við pogrom, skipu­lagðar ofsóknir og ofbeld­is­árásir gegn gyð­ingum.

Doron Meinert, fyrr­ver­andi ofursti, segir her­námið vera eitt stærsta vanda­mál ísra­elsks sam­fé­lags.

„Við verðum að takast á við það. Við getum ekki litið fram hjá því. Við verðum að reyna að leysa þetta í sam­ein­ingu með Palest­ínu­mönnum,“ sagði hann.

Ben-Reuven og fleiri úr hópnum segj­ast einnig hafa áhyggjur af því hvernig ofbeldi land­töku­fólks skaði alþjóð­legt orð­spor Ísraels.

„Þetta skapar Ísrael vanda­mál, bæði hern­að­ar­lega og póli­tískt, á Vest­ur­löndum og í Banda­ríkj­unum,“ sagði Yoni Shims­honi, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­hers­höfð­ingi. Hann segir sig einnig knú­inn áfram af stöðu palest­ínskra bænda og and­stöðu við inn­limun Vest­ur­bakk­ans í Ísrael.

„Herinn verndar landtökufólkið“

Nimr Nazzal, sem á land nærri Qusra þar sem hóp­ur­inn aðstoð­aði við upp­sker­una, segir að án hjálpar fyrr­ver­andi her­for­ingj­anna væri honum ómögu­legt að kom­ast að ólífutrjánum sínum vegna árása land­töku­fólks.

Hann segir margar árás­irnar njóta stuðn­ings ísra­elska hers­ins.

„Herinn verndar land­töku­fólkið,“ sagði Nazzal.

Ísra­elsku mann­rétt­inda­sam­tökin Yesh Din hafa skráð 180 lík­ams­árásir á palest­ínska ólífu­tínslu­menn á fyrstu 35 dögum upp­skeru­tíma­bils­ins. Samkvæmt sam­tök­unum voru her­menn við­staddir í meira en 23 pró­sentum þeirra til­vika þar sem ofbeldi land­töku­fólks var skráð.

Palest­ínu­menn segja að þegar þeir leiti til ísra­elska hers­ins vegna árásanna bregð­ist hann ann­að­hvort seint við eða komi árás­ar­mönn­unum til aðstoðar. Ísra­elski her­inn hafnar þeim ásök­unum.

Meinert, sem ver nú stórum hluta tíma síns í sjálf­boða­starf á Vest­ur­bakk­anum til stuðn­ings Palest­ínu­mönnum, segir einnig að ísra­elski her­inn aðstoði land­töku­fólkið.

Hann segir suma ísra­elska her­menn deila þeirri hug­mynda­fræði öfga­fulls land­töku­fólks að aðeins gyð­ingar eigi rétt á svæð­inu og að ann­að­hvort eigi að reka araba þaðan eða láta þá búa þar sem ann­ars flokks borg­ara.

Ísra­elski her­inn hefur áður sagt að hann sé her fólks­ins og end­ur­spegli allt lit­róf skoð­ana í ísra­elsku sam­fé­lagi.

Um 500 þús­und ísra­elskir land­töku­menn búa á Vest­ur­bakk­anum ásamt að minnsta kosti þremur millj­ónum Palest­ínu­manna. Sam­ein­uðu þjóð­irnar og flest ríki heims telja land­töku­byggð­irnar ólög­legar sam­kvæmt alþjóða­lögum um her­nám. Ísrael hafnar þeirri túlkun og lítur á svæðið sem umdeilt land­svæði en ekki hernumið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr