Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vilja krefja Hval hf. um bætur vegna veiðibanns

Mynd / Envato Elements
Mynd / Envato Elements

Eftir ákvörðun mat­væla­ráð­herra um að banna veiðar á lang­reyði í sumar hefur Verka­lýðs­fé­lag Akraness það til skoð­unar að sækja bætur til Hvals hf. vegna tekju­taps sem starfs­menn verða fyrir vegna banns­ins.

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins, segir að verið sé að und­ir­búa að stefna mál­inu til félags­dóms til að kanna rétt­indi félags­manna gagn­vart ákvörð­un­inni.

Þetta kemur fram í Fiski­fréttum.

Ef mál gagn­vart Hval hf. vinnst segir Vil­hjálmur að það liggi fyrir að Hvalur sé jafn­framt kom­inn með mál í hend­urnar gagn­vart rík­inu. Verði verka­lýðs­fé­lag­inu hins vegar ekki ágengt gagn­vart Hval hf. munu þau eðli máls­ins sam­kvæmt láta á það reyna gagn­vart rík­inu.

Vil­hjálmur lýsir bann­inu sem ger­ræð­is­legri, póli­tískri ákvörðun sem hvorki virð­ist byggð á neinni fag­mennsku né almennri skyn­semi varð­andi lög­fræði og spyr um sam­starfs­flokk­ana.

„Hvar eru sjálf­stæð­is­menn og hvar eru fram­sókn­ar­menn í þessu máli? Það er stóra spurn­ingin í mínum huga. Ég botna ekki í svona lög­uðu, sér­stak­lega vegna þess að það er æði margt sem bendir til þess að þessi ákvörðun mat­væla­ráð­herra stand­ist ekki lög. Ég spyr mig hvert póli­tíkin sé komin þegar að við erum komin á þann stað að þetta muni jafn­vel baka rík­inu skaða­bóta­skyldu og menn vita af því og ætla ekk­ert að gera með það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.
Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu