Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hljóðbylgjur gætu slökkt skógarelda í framtíðinni

Til­raunir hafa sýnt að kerfið getur virkað í allt að 7,5 metra fjar­lægð.

Skógareldur í Argentínu í dag
Skóg­ar­eldur í Argent­ínu í dag Tæknin er ennþa á til­rauna­stigi Mynd: MARTIN LEVICOY / AFP

Hljóð­bylgjur gætu í fram­tíð­inni gegnt mik­il­vægu hlut­verki í því að stöðva skóg­ar­elda á byrj­un­ar­stigi.

Í umfjöllun Scientific American kemur fram að banda­ríska tækni­fyr­ir­tækið Sonic Fire Tech hafi þróað nýstár­legt slök­kvikerfi sem byggir á notkun svo­kall­aðs infrasound, það er hljóð­bylgja sem eru neðan heyrn­ar­sviðs manns­ins. Mark­miðið er að kæfa smáa elda áður en þeir ná að breið­ast út. Bænda­blaðið fjall­aði um málið.

Tæknin byggir á því að raska einu af grund­vall­ar­skil­yrðum elds, súr­efni. Með því að láta súr­efnið titra hraðar en brun­inn nær að nýta það stöðvast efna­hvarfið sem við­heldur eld­inum. Geoff Bruder, flug­verk­fræð­ingur og stofn­andi Sonic Fire Tech, segir að til­raunir hafi sýnt að kerfið geti virkað í allt að 7,5 metra fjar­lægð.

Þótt hug­myndin virð­ist nýstár­leg er hún ekki án for­dæma. Banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið rann­sak­aði sam­bæri­legar aðferðir á árunum 2008 til 2011 og árið 2015 var kynnt til sög­unnar hljóð­knúið slökkvi­tæki sem minnti helst á subwoofer-magn­ara. Samkvæmt Albert Simeoni, pró­fessor við Worcester Polytechnic Institute, eru áhrif hljóð­bylgja á eld vel þekkt innan bruna­vís­inda, en helsta hindr­unin sé að þróa kerfið þannig að það virki í stærra sam­hengi án þess að valda óþægi­legum eða skað­legum hljóð­á­hrifum.

Sonic Fire Tech hefur þegar þróað lausnir sem ætl­aðar eru til að verja hús gegn elds­voðum. Þar er infrasound, með tíðni undir 20 hertzum, nýtt vegna þess að slíkar bylgjur ber­ast lengra en hefð­bundið hljóð og eru óheyr­an­legar fyrir manns­eyra. Kerfið sam­anstendur af stimplum sem knúnir eru af raf­mót­orum og senda bylgjur um málm­rör sem liggja eftir þökum og undir þak­skeggjum. Þegar skynjarar nema loga fer kerfið sjálf­krafa í gang og myndar eins konar varn­ar­svæði sem dregur úr líkum á að eldur kvikni eða breið­ist út.

Sér­fræð­ingar benda þó á að tæknin nýt­ist enn sem komið er aðeins gegn litlum eldum. Arnaud Trouvé, pró­fessor við Háskól­ann í Maryland, segir engu að síður mik­inn áhuga vera á frek­ari þróun. Fyr­ir­tækið vinnur nú í sam­starfi við tvö orku­fyr­ir­tæki í Kali­forníu og stefnir á að setja upp 50 til­rauna­kerfi snemma árs 2026. Jafn­framt hafa nokkrir hús­eig­endur þegar gengið til samn­inga um upp­setn­ingu kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Sjálfvirkt brunavarnakerfi sprautaði vatni yfir matsöluskála á skíðasvæði í Kína. Enginn slasaðist en loka þurfti skálanum tímabundið.

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest