Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Styrkja Grindvíkinga með uppboði: „Þekkjum af eigin raun hinar ýmsu jarðhræringar“

Ásdís Hoffritz með tvö af olíu málverkum sem verða á uppboðinu.
Ásdís Hoffritz með tvö af olíu mál­verkum sem verða á upp­boð­inu.

Mynd­list­ar­fé­lag Árnes­sýslu hefur ákveðið að halda upp á mál­verkum til að styrkja íbúa Grinda­víkur við að lifa við þær erf­iðu aðstæður sem það gerir núna. Það eru hátt í 40 verk og hátt í 25 félags­menn sem taka þátt í upp­boð­inu og hægt að fá gíf­ur­lega fal­leg verk og styrkja Grinda­vík­inga í leið­inni. Mannlíf heyrði í Berg­lindi Björg­vins­dóttur, for­manni Mynd­list­ar­fé­lags Árnes­sýslu, til að spyrj­ast fyrir um upp­boðið.

Berglind Björg­vins­dóttir ,for­maður Mynd­list­ar­fé­lags Árnes­sýslu.

„Mynd­list­ar­fé­lag Árnes­sýslu ákvað að leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim Grind­vík­ingum sem þurfa á hjálp að halda. Það hefur verið frá­bært að sjá sam­stöðu í þjóð­inni, fólk að lána hús­næði, gefa fatnað, leik­föng, hús­gögn og fleira. Pjetur Hafstein félags­maður fékk þá frá­bæru hug­mynd að við gætum gert eitt­hvað til þess hjálpa og nið­ur­staðan var sú að félags­menn voru svo frá­bærir að vilja gefa verk til þess að styrkja Grind­vík­inga,“ sagði Berglind um hvernig það kom til að félagið ákvað að halda upp­boð til styrktar Grind­vík­ingum.  „Við höfðum sam­band við Rauða Krossinn og þeir eru með reikn­ing sem er eyrna­merktur Grind­vík­ingum til að styðja við þá og við munum því með upp­boð­inu selja verk eftir félags­menn og rennur and­virði verk­anna óskipt í sjóð­inn hjá Rauða Kross­inum fyrir Grind­vík­inga.  Við viljum rétta fram hjálp­ar­hönd, margt smátt gerir eitt stórt.“

„Það er mjög erfitt að setja sig í aðstæður heima­manna í  Grinda­vík,“ sagði Berglind um ástandið í Grinda­vík. „Að geta gert eitt­hvað til þess að hjálpa skiptir því máli, við í Mynd­list­ar­fé­lag­inu viljum leggja fram hjálp­ar­hönd á þann hátt sem við getum og gefum mál­verk á upp­boðið,“ en upp­boðið fer fram á Hótel Selfossi sunnu­dag­inn 17. Sept­em­ber klukkan 14:00. „Þá verður upp­boðið haldið og gefst tæki­færi til þess að bjóða í fal­leg mál­verk á staðnum. Það verða vatns­lituð verk, blek teiknuð verk, akrýl- og olíu mál­verk. Öll verkin eru mjög ólík og stærð­irnar eru einnig ólíkar, en það ættu allir að geta fundið sér mál­verk inn á sitt heim­ili eða í jóla­pakk­ann til þeirra sem hafa áhuga á list.“

Pjetur Hafstein lista­maður með eitt af verkum sínum sem verða á upp­boð­inu.

„Það hefur verið ótrú­lega flott sam­staða í þjóð­fé­lag­inu í þessum jarð­hrær­ingum á Reykja­nesi, hvort sem það eru stjórn­völd, fyr­ir­tæki eða ein­stak­lingar,“ sagði for­mað­ur­inn um við­brögð þjóð­fé­lags­ins í þessu máli. „Það er því ánægju­legt fyrir Mynd­list­ar­fé­lagið að taka þátt og láta gott af sér leiða í þessum erf­iðu aðstæðum,“ en Sunn­lend­ingar eru alls ekki ókunnir jarð­skjálftum og eld­gosum.

„Við Sunn­lend­ingar þekkjum af eigin raun hinar ýmsu jarð­hrær­ingar eins og stóra jarð­skjálfta, líkt og Suð­ur­lands­skjálft­ann og til dæmis eld­gosið í Eyja­fjalla­jökli. Ég vona inni­lega að upp­boðið sem Mynd­list­ar­fé­lagið stendur fyrir heppn­ist vel og að það komi til góðs fyrir marga Grind­vík­inga sem þurfa á því að halda. Við von­umst eftir jóla­krafta­verki og að Grind­vík­ingar kom­ist heim fyrir jólin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp