Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Matti segir sjálfsást mikilvæga: „Verðum að minnka þörf á viðurkenningu í gegnum samfélagsmiðla“

Skjáskot – Matti Ósvald
Skjáskot – Matti Ósvald

Matti Ósvald heilsu­fræðingur og mark­þjálfi fann ástríðuna eftir að hafa lent í slysi sem olli því að hann var rúmliggjandi mánuðum saman aðeins 19 ára gamall. Matti, sem er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að sitt stærsta högg hafi á margan hátt endað sem hans stærsta blessun:

,,Ég hef alla tíð haft áhuga á að vita hvernig fólk virkar og hvaðan við komum. Alveg frá því að ég var barn var ég að lesa bækur af forvitni um alls kyns málefni. En svo er það í raun og veru slys eða alvarleg meiðsli sem verða til þess að ég fer alla leið í að skoða heildræna heilsu og leiðir til að hámarka sjálfan sig. Ég var að spila körfu­bolta 19 ára gamall og fæ ofan á mig annan leikmann og svo vakna ég bara einn morguninn í vinkil og get ekki gengið eða gert eðlilega hluti. Ég gat ekki farið á salernið og leið eins og ég væri með rýting í bakinu. Til að gera langa sögu stutta þá fór ég til 3 sérfræðinga og þeir sögðu mér á endanum að ég ætti ekki að gera mér miklar vonir um að stunda aftur íþróttir. Það eina sem ég gæti gert væri að liggja í rúminu í mánuð og sjá hvort að líkaminn geti gert eitthvað til að laga þetta. Það var auðvitað rosalegt sjokk fyrir ungan íþrótta­strák að fá þessar fréttir. En ég sé núna að líf mitt tók í raun nýja stefnu eftir þetta. Ég þurfti að kafa djúpt og lesa mér til um allt sem til var um heilsu til að koma mér aftur til baka. Það var 12 mánaða tímabil þar sem ég þurfti að taka hvíld frá skóla og öllu og var í raun meira og minna rúmfastur. En ég komst á endanum út úr þessu tímabili og spila meira að segja ennþá körfu­bolta í dag,” segir Matti, sem segir að eftir þetta tímabil hafi hann einsett sér að verða maðurinn sem hann hefði þurft á að halda þegar hann meiddist:

,,Ég ákvað að fara í nám í heild­rænni heilsu­fræði í Kaliforníu í fjögur ár og smám saman varð ég eins konar þerapisti sem var samt fyrir utan hið hefð­bundna heilbrigðis­kerfi. Fólk er orðið mun móttækilegra fyrir þessum hlutum í dag, en á þessum tíma sáu margir allt sem var fyrir utan kerfið sem einhverja vitleysu. En ég ákvað að fara þessa leið og vildi gera það vel og leggja mig allan fram.”

Matti hefur í gegnum árin unnið með mikinn fjölda fólks, sem heilsu­fræðingur, mark­þjálfi og nuddari og er því með góða mynd af því sem helst plagar fólk í nútímanum:

,,Auðvitað eru þessir hefð­bundnu hlutir eins og streita, slæmt matarræði, hreyfingar­leysi og of lítill svefn að hafa slæm áhrif. En svo eru líka aðrir hlutir sem hafa mikil áhrif. Þessi stans­lausi saman­burður er klárlega eitt af því sem er að valda fólki hve mestri vanlíðan. Við erum stans­laust að bera okkur saman við glansmyndir af öðrum og það býr til niðurrif. Í staðinn ættum við að einbeita okkur á að horfa inn og átta okkur á því góða í okkur sjálfum. Í raun er saman­burður á margan hátt rótin að sorg. Það þurfa ekkert allir að hugleiða eða þess háttar, en bara finna leiðir til að bæta sjálfs­virði sitt. Það er mjög margt gott og skemmtilegt við samfélags­miðlana og símana, en við verðum að minnka þennan stans­lausa samanburð og þörf á viðurkenningu í gegnum samfélags­miðla. Það mun aldrei skila okkur varanlegri hamingju. Ég held að það sé orðin mikil þörf á að fólk læri að elska sjálft sig og það er á margan hátt fyrsta skrefið í að bæta aðra hluti. Sá sem á í brjáluðu ástar­sambandi við sjálfan sig mun vilja hlúa vel að sér.”

Matti hefur mikið skoðað karl­mennsku og er með mjög ákveðnar hugmyndir um hvað þarf að gerast þegar kemur að karl­mennsku nútímans:

,,Við þurfum á hvoru öðru að halda konur og karlar. Fyrir mér er næsta skref í karl­mennsku að hlusta á hvað konur eru að biðja um. Þær geta auðvitað ekki ákveðið hvernig á að vera karlmaður og eiga ekki að fá að gera það. En í mínum huga er skýrt hvað þær eru að biðja um frá okkur og það er fyrst og fremst öryggi. Getum við byrjað að þróa nýja karl­mennsku, þar sem konum líður öruggum og byrjað þar. Það þýðir ekki að við eigum að vera meðvirkir og leyfa þeim að vaða yfir okkur. Ný karl­mennska er alls ekki að fara í bleikan bol og segjast vera feministi. Það er skugga­orka bæði í karlorku og kvenorku og við eigum ekki að festast í að skoða bara skuggana í karl­orkunni, en við karlmenn þurfum að leyfa kven­orkunni að komast í gegn. Og konum verður að líða öruggum nálægt okkur og þær verða að treysta okkur. Flestir karlmenn hafa aldrei þurft að hugsa um það að geta ekki gengið um göturnar án þess að vera með augu í hnakkanum eða óttast um öryggi sitt.”

Matti segir í þættinum frá því þegar hann upplifði óvart sína eigin jarðaför og hvernig það hafði mikil áhrif á hugarfar hans og breytti honum varanlega:

,,Dauðinn er langbesti kennarinn okkar, af því að hann tekur af borðinu allt sem ekki skiptir máli. Það var í jarðar­förinni hjá afa mínum og alnafna, Matta Ósvald, sem ég varð fyrir magnaðri reynslu sem hjálpaði mér að skilja þetta fyrir alvöru. Afi var orðinn 98 ára gamall þegar hann fór og var kraft­mikill maður og mikil fyrirmynd. Ég labbaði inn í kirkjuna eftir kistu­lagninguna til að hugga lítinn strák sem var grátandi þegar athöfnin var búin. Ég var að segja honum að afi hafi í raun verið sáttur við að fara þegar mér er litið upp og ég sé hvíta kistu, Kefla­víkurmerkið og merki Víkings í Ólafsvík og svo nafnið mitt á öllum krönsunum. Mér brá í 3-4 sekúndur, en svo kom yfir mig mikill friður. Ég áttaði mig á því að svona yrði þetta einn daginn fyrir mig og sá í raun mína eigin jarðarför. Það var eins og ég fengi gríðar­lega sterk skilaboð um að það eina sem skipti máli væri hvernig ég ætlaði að lifa þangað til að dagurinn kæmi þar sem nafnið mitt yrði aftur á sama stað í kirkjunni og minn dagur væri kominn. Þegar það gerist mun fólk halda áfram að fara í búðina og kaupa kaffi daginn eftir. Það er mikilvægt að horfast í augu við það að dauðinn mun banka upp á einn daginn og þá mun lífið halda áfram hjá hinum. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa þetta og sjá þetta svona skýrt.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi