Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Lögreglan kenndi rollum umferðareglurnar – Fluttur á slysadeild eftir árás frosinnar beyglu

Samkvæmt dag­bók lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru alls bókuð 50 mál á tíma­bil­inu frá 05:00 í morgun til 17:00 í dag.

Í miðbæ Reykja­víkur var aðili hand­tek­inn fyrir ógn­andi til­burði en hann hafði reynt að snapa fæt­ing (slást) við veg­far­endur. Vegna ástands­ins á honum var hann hand­tek­inn og lát­inn gista í fanga­geymslu. Var hann kærður fyrir brot á lög­reglu­sam­þykkt.

Hefði aðil­inn sem sagt er frá hér að ofan hitt þá þrjá aðila sem lög­reglan hand­tók í mið­borg­inni, hefði hann sjálf­sagt fundið ein­hverja til að slásti við. Sem betur fer kom ekki til þess því þeir voru allir með egg­vopn á sér og einn þeirra með að auki fíkni­efni í fórum sínum. Voru þeir með hár­reysti en egg­vopnin voru gerð upp­tæk og voru allir kærðir vegna vopna­laga­brots og einn þeirra fyrir vörslu fíkni­efna að auki.

Þá barst til­kynn­ing um menn í ann­ar­legu ástandi fyrir utan hús í mið­bænum. Þegar betur var að gáð, reynd­ust þeir í sól­baði. Ekki kom fram hvort þeir hefðu fengið sól­sting, sem gæti útskýrt ann­ar­lega ástandið.

Í Hafn­ar­firði var lög­reglan kölluð í heima­hús vegna hávaða. Hús­ráð­andi baðst afsök­unar og lof­aði að slútta sam­kvæm­inu. Þá bakk­aði aðili á bif­reið og reyndi að kom­ast undan. Það tókst ekki en hann reynd­ist vera undir áhrifum ávana- og fíkni­efna við akst­ur­inn. Var hann fluttur á lög­reglu­stöð í venju­bundið ferli.

Lögregla sem þjón­ustar Kópa­vog­inn og Breið­holtið var kölluð að fjöl­býl­is­húsi vegna tveggja grun­sam­legra manna sem höfðu reynt að brjót­ast inn í húsið. Tóku þeir til fót­anna er þeir urðu varir við til­kynn­anda.

Þá var til­kynnt um um aðila sem hafði slasað sig á hendi við að skera frosna beyglu en hann var fluttur á slysa­deild til aðhlynn­ingar. Alltaf að hita beygl­una í ofni áður en hún er skorin.

Svo var til­kynnt um sauðfé sem olli hættu á Suð­ur­lands­vegi. Samkvæmt dag­bók­inni var roll­unum kennt umferð­a­regl­urnar. Mannlíf efast um lær­dóm þeirra enda bölv­aðir sauðir oft.

Að lokum barst til­kynn­ing um reyk og mögu­legan eld í gróðri í hverfi 110. Reyndist þetta hins vegar ekki á rökum reist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.
Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu