Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Daði Már segir svar um fundi án forstjóra hafa verið ónákvæmt

Fjár­mála­ráð­herra styður að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fari yfir gögn um mál­efni Lands­virkj­unar en hafnar ásök­unum um póli­tísk afskipti.

Daði Már segir svar um fundi án forstjóra hafa verið ónákvæmt
Ónákvæmt svar Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra sagði á Alþingi að fyrra svar hans um stjórn­ar­fundi Lands­virkj­unar án for­stjór­ans hefði verið óná­kvæmt. Mynd: Víkingur

Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við­ur­kenndi á Alþingi í dag að svar hans um stjórn­ar­fundi Lands­virkj­unar án Harðar Arn­ar­sonar hefði verið óná­kvæmt. Hann sagði fund­ina hafa varðað mál­efni Harðar og kvaðst styðja að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd færi yfir gögn máls­ins. Þetta kemur fram í frétt Vísis af umræðum á Alþingi.

Bergþór Ólason spurði ráð­herr­ann hvers vegna hann hefði sagt 26. októ­ber að engir stjórn­ar­fundir hefðu farið fram án Harðar þegar gögn sýndu annað. „Það er rétt að þetta var ekki gott og nákvæmt svar varð­andi stjórn­ar­fund­ina,“ svar­aði Daði Már. Hann sagði fund­ina hafa verið haldna vegna minn­is­blaðs for­stjór­ans um stjórn­ar­hætti.

Fyr­ir­spurn á þingiBergþór Ólason spurði ráð­herr­ann um stjórn­ar­fundi Lands­virkj­unar án for­stjór­ans.

Bergþór spurði jafn­framt hvernig fund­irnir sam­ræmd­ust ákvæði laga um Lands­virkjun um setu for­stjóra á stjórn­ar­fundum og hvort laga­legt mat hefði legið að baki. Daði Már sagði for­stjóra alltaf hafa vikið af fundum þegar fjallað væri um mál­efni hans sjálfs. Fund­irnir sem um ræddi hefðu allir tengst Herði.

„Það er rétt að þetta var ekki gott og nákvæmt svar varð­andi stjórn­ar­fund­ina“
Daði Már Krist­ó­fers­son
fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra
Fundir án for­stjóraDaði Már sagði fund­ina alla hafa tengst mál­efnum Harðar Arn­ar­sonar.

Ráð­herr­ann sagð­ist styðja að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd færi yfir gögn máls­ins. Bergþór sagði stjórn Lands­virkj­unar þegar hafa synjað sér um aðgang að fund­ar­gerðum frá afmörk­uðu tíma­bili á árinu. Daði Már kvaðst ekki geta lofað að auð­velt yrði að fá fund­ar­gerð­irnar en myndi sýna beiðni um þær skiln­ing.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son gagn­rýndi svar ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn um starfs­lok Harðar 19. októ­ber. Hann sagði ráð­herr­ann hafa vitað af bréfi Harðar um áhyggjur af mögu­legum póli­tískum afskiptum en ekki greint Alþingi frá því í svar­inu.

Daði Már sagði ráðu­neytið hafa lagt fram allar upp­lýs­ingar sem tengd­ust mál­inu. Hann hafn­aði ásök­unum um póli­tísk afskipti af Lands­virkjun og sagð­ist standa við fyrra svar sitt um að ágrein­ingur stjórnar og for­stjóra hefði varðað stjórn­ar­hætti og sam­skipti, ekki stefnu fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórnin nyti áfram fulls trausts hans til að ráða nýjan for­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísra­elskur veð­ur­frétta­maður gerði grín að flóð­unum á Gaza

„Ég hef ekki upplifað svona mikla hamingju síðan á sjöunda áratugnum“
Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

  • Pólitík

    Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“