Karlmaður á þrítugsaldri var stunginn með hnífi í miðborginni í gærkvöld eftir að til átaka kom bakatil við hús við Austurvöll. Maðurinn var fluttur á Landspítalann, gekkst þar undir aðgerð og er líðan hans eftir atvikum. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Tilkynning um málið barst lögreglu á ellefta tímanum og hélt hún þegar á vettvang, en fjórir voru handteknir í þágu málsins. Þremur þeirra var fljótlega sleppt úr haldi, en sá fjórði, sem er ungur að árum, er vistaður í viðeigandi úrræði.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir