Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Íbúar móðgaðir og segja Grafarvog ekki ghettó: „Eru þetta ekki ærumeiðingar?“

Íbúar í Grafar­vogi eru ekki alls kosta ánægðir með umsögn ónefnds fasteigna­sala sem Frétta­tíminn hafði eftir honum. Í frétt fjöl­miðilsins um eldsvoða í Spönginni var fullyrt að ónefndur fasteigna­sali teldi mikla hættu á því að fasteignaveð í Grafar­vogi fari lækkandi enda „sé hverfi 112 að þróast mjög út í að vera gettó“.

Einn íbúi, Gunnar nokkur, spyr nágranna sína innan Facebook-hóps íbúa hvort þetta sé rétt. „Hvað segið þið, búum við í gettói?,“ spyr hann. Flestir taka illa í þetta og taka sem nánast árás á hverfið.

Einn skrifar: „Hver er að tjá sig með þessum hætti? Hver er ábyrgð viðkomandi?“ Annar segir: „Eru þetta ekki ærumeiðingar?“ Sá þriðji tekur undir og skrifar: „Þarf ekki að ræða alvarlega við þennan fasteigna­sala og blaða­manns ónefni. Þetta er alvarleg alhæfing um þetta góða hverfi okkar.“

Sá fjórði er á svipuðum slóðum: „Hér er ábyrgðar­laust tal ef satt reynist að fasteigna­sali hafi látið hafa þetta eftir sér. Hann verður að rökstyðja þetta betur og nafn hans uppgefið svo öruggt sé að íbúar í mínu frábæra hverfi snúi sér alla vega ekki til hans eða hans fasteigna­sölu, hugi þeir á að selja eign sína. Látum ekki misvitran fasteigna­sala rýra verðmæti eigna okkar.“

Sumir segja þó að ef Grafar­vogur sé gettó þá er það Degi B. Eggerts­syni borgar­stjóra og meirihlutanum að kenna. „Fulltrúar úr borgar­stjórnar­meirihlutanum hafa lýst í fjöl­miðlum andstyggð sinni á þessu hverfi,“ segir einn maður.

Kona nokkur segir íbúa hafa barist gegn þessu á árum áður. „Ég man að Einar sem var varð­stjóri hér í Grafar­vogi fyrir aldamót bað okkur um að tala ekki hverfið okkar niður í fjöl­miðlum.“

Ein kona virðist telja að bara eitt hverfi geti verið gettó og skrifar: „Ég hélt að Breið­holti væri gettóið.“ Önnur kona segir að Grafar­vogur sé mögulega að taka titillinn af Grafar­vogi. „Þegar ég var unglingur og bjó í folda­hverfinu í blokkunum þá var ég kölluð af manneskju úr Breið­holti snobb fyrir það eitt að búa í Grafar­vogi sem mér fannst alltaf mjög fyndið því ég bjó þá í gömlum verkamanna­blokkum en hann í raðhúsi. En ég hef heyrt það áður að Breið­holtið er orðið fjölskyldu­vænna en Grafar­vogurinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi