Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Orkuveitan hefur umdeildar framkvæmdir

Leyfi fékkst frá Þor­láks­höfn til að raska landi undir Hengli. Stefnt að 15 vind­myllum sem fara yfir 200 metra að hæð.

Jarðrask nærri Hengli
Jarðrask nærri Hengli Orku­veitan ryður eins kíló­metra langan slóða frá Nesja­valla­vegi í átt að Hengli. Mynd: Facebook

Orku­veita Reykja­víkur hefur rutt sér leið í gegnum óraskað land á Mos­fells­heiði norður af fjall­inu Hengli til þess að koma upp 125 metra háu mastri fyrir vind­mæl­ingar. Nátt­úru­vernd­ar­sinnar gagn­rýna fram­kvæmd­irnar, en þær eru aðeins byrj­unin, því til stendur að reisa 15 vind­myllur, allt að 210 metra háar, sem sjást munu víða af höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eins og Mannlíf greindi frá.

Fram­kvæmdin var sam­þykkt af sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi, þótt fram­kvæmda­svæðið sé mun nær Reykja­vík og Mos­fellsbæ heldur en Þor­láks­höfn.

Páll Ásgeir Ásgeirs­son, nátt­úru­vernd­ar­sinni, ferða­fröm­uður og höf­undur margra bóka um nátt­úru­ferðir, gagn­rýndi jarð­raskið í dag, rétt eins og eig­in­kona hans, Rósa Sigrún Jóns­dóttir, far­ar­stjóri hjá Ferða­fé­lagi Íslands.

„Svona gengur Orku­veitan um landið á Mos­fells­heiði,“ segir Páll Ásgeir. „Þarna mun rísa 120 metra hátt „rann­sókn­armastur“ vegna áhuga OR á að reisa vind­orku­ver skammt frá Dyravegi undir Hengl­inum,“ segir hann og bætir við. „Fram­kvæmda­leyfi rann í gegnum sveit­ar­stjórn Ölfus án athuga­semda um úttektir eða rann­sóknir áður en haf­ist yrði handa.“

Ölfus veitti framkvæmdaleyfi

Orku­veitan sótti um fram­kvæmda­leyfi til sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss í fyrra­sumar. Í fund­ar­gerð skipu­lags- og umhverf­is­nefndar Ölfuss kemur fram að eins kíló­metra langur vega­slóði sé ruddur.

„OR sækja um fram­kvæmda­leyfi vegna fram­kvæmda og reis­ingar vind­mæl­ingamast­urs á sunn­an­verðri Mos­fells­heiði um 1 km sunnan Nesja­valla­vega, auk aðkomuslóða frá Nesja­valla­vegi. Mastrið verður 125m hátt og mun að hámarki standa í 2 ár meðan vind­mæl­ingar standa yfir,“ segir í fund­ar­gerð­inni.

Skipu­lags- og umhverf­is­nefnd sveit­ar­fé­lags­ins sam­þykkti að veita fram­kvæmda­leyfið.

Mörk sveit­ar­fé­lagaFram­kvæmdir Orku­veit­unnar í til­rauna­skyni eru við norð­ur­enda sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss.

Ósáttir náttúruverndarsinnar

Um 40 manna hópur á vegum Land­verndar gekk um svæðið í gær. Frömuðir í ferða­mennsku og nátt­úru­vernd gagn­rýna fram­kvæmd­ina harð­lega undir færslu Páls Ásgeirs.

„Já, nú er svæðið nátt­úru­lega ekki óraskað,“ segir Teitur Þor­kells­son og bætir við: „„Fram­fara­lestin“ brunar.“

Pálmi Gestsson, leik­ari og Spaug­stofu­maður, blótar fram­kvæmd­inni. „Helv…fokk­ing fokk, þetta er í bak­garð­inum hjá mér. Allt að 210 metra háar, eins háar og þrír Hall­gríms­kirkju­turnar hver ofan á öðrum. Þessi andsk.. sæist vestur á firði!“

„Þetta er skelfi­leg fram­koma,“ segir Hinrik Ólafsson leik­ari og leið­sögu­maður. „Svei þeim sem stunda svona verknað.“

Steyptur grunnur 30 metrar í þvermál

Orku­veitan lýsti áformum sínum í mats­á­ætlun í mars síð­ast­liðnum. Þar kemur fram að gert sé ráð fyrir steyptum und­ir­stöðum sem við hverja vind­myllu sem ná að hámarki 30 metrum í þver­mál og 2 til 3 metrum að dýpt. Lengd spaða verður að hámarki 87,5 metrar. Orkan sem fæst næði allt að 108 megawöttum. Það er rúm­lega einn þriðji af orku­fram­leiðslu Hell­is­heið­ar­virkj­unar, sem sést frá Hell­is­heiði, og rétt tæp­lega jafn­mikil orku­fram­leiðsla og frá Nesja­valla­virkjun, sem er austan megin Dyr­fjalla frá áform­uðu vind­orku­veri.

For­sendur Orku­veit­unnar fyrir stað­ar­vali voru eft­ir­far­andi: Að „vera í nálægð við þegar röskuð svæði, vera í nálægð við dreifi­kerfið og starfs­svæði Orku­veit­unnar, lág­marka áhrif á umhverfi, nátt­úru og dýra­líf og lág­marka sjón­ræn áhrif við mik­il­væg nátt­úru, ferða­manna- og úti­vist­ar­svæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu