Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Brotthvarf Sólveigar Önnu: „Forystan stefndi að því að hreinsa út alla starfsmenn og þekkingu“

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Sólveig Anna sendi frá sér yfir­lýsingu seint í gærkvöldi þar sem hún greindi frá afsögn sinni. Í yfir­lýsingunni segir að starfs­fólk Eflingar hafi hrakið hana úr starfi. Hvorki næst í Sólveigu Önnu né Viðar Þorsteinsson framkvæmda­stjóra og lýsir starfs­fólk á skrif­stofu Eflingar stöðunni þannig að allt sé í lausu lofti.

Viðar Þorsteinsson, framkvæmda­stjóri stéttar­félagsins Eflingar, mun afhenda uppsagnar­bréf sitt í dag og hætta þannig störfum fyrir félagið.

„Mér þykir það ótrúlegt að það sé starfs­fólk Eflingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa andstæðingum félagsins að hossa sér á ýkjum, lygum og rang­færslum um mig og samverka­fólk mitt. Starfs­fólk Eflingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögulegt að leiða sögulega og árangurs­ríka baráttu verka- og láglaunafólks síðustu ár, mannorði mínu og trúverðug­leika,“ segir Sólveig í yfir­lýsingu á Facebook.

Þráinn Hallgrímsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Eflingar

Mannlíf hafði samband við Þráinn Hallgrímsson, fyrr­verandi skrif­stofustjóri Eflingar sem vildi lítið tjá sig um málið og sagði að það væri að skýrast af sjálfu sér.

Í grein Þráins sem var birt var í Morgun­blaðinu 25. september 2019 sagði Þráinn að: „mín skoðun er sú að hin nýja stétt í forystu Eflingar stefni að því að hreinsa út alla starfs­menn og þekkingu sem kemur úr eldra umhverfi félagsins.“

Þráni var sagt upp störfum sem skrif­stofustjóra Eflingar á sínum tíma fyrirvara­laust á starfsmanna­fundi.

Ári síðar var öðrum starfs­manni Eflingar gert að mæta samstundis hjá framkvæmda­stjóra þar sem fyrir var „fulltrúi starfs­manna“ sem framkvæmda­stjóri hafði sjálfur valið til setu á fundinum. Ástæða uppsagnar var sögð skipulags­breytingar. Fljótlega kom í ljós að það var fyrir­sláttur enda voru ráðnir þrír nýir starfs­menn um svipað leyti og engin af verkefnum viðkomandi starfs­manns voru lögð niður. Áminningar­ferill var ekki virtur í samræmi við ákvæði kjara­samnings. Í næsta herbergi beið einn lögmanna ASÍ. Þegar starfs­maðurinn neitaði að skrifa undir móttöku uppsagnar­bréfs tók lögmaður ASÍ að sér að reyna að sannfæra starfs­manninn um að þessi framkoma framkvæmda­stjórans væri í lagi. Enginn varði hagsmuni starfs­mannsins á fundinum.

Ástæða yfir­lýsingar trúnaðar­manna félagsins í dag er ógnar­stjórnunar­tilburðir Sólveigar. Yfir­lýsingin var send fyrir hönd starfs­manna Eflingar í sumar en á nýlegum starfsmanna­fundi félagsins bauð Sólveig starfs­fólki Eflingar að staðfesta frásögnina. Það var gert og taldi Sólveig sér ekki stætt sem formaður lengur og sagði því af sér.

Sólveig sögð halda úti „aftökulista

Ástæða þess að Sólveig Anna ávarpaði starfs­fólk var sú að trúnaðar­menn starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar samþykktu ályktun 9. júní síðastliðinn sem send var á hana og aðra stjórn­endur félagsins. Í umræddri ályktun mun Sólveig Anna hafa verið sökuð um að halda úti „aftöku­lista“ yfir starfs­fólk sem henni væri ekki þóknanlegt og að hún hefði brotið kjara­samninga með fyrirvara­lausum uppsögnum, auk annars. Í stöðu­uppfærslu sinni segir Sólveig Anna að hanni hafi verið brugðið vegna texta ályktunarinnar „sem var ekki sann­leikanum samkvæmur og að mínu mati skrifaður af miklu dómgreindar­leysi, en ég blandaði mér þó ekki í þetta mál heldur fól öðrum stjórn­endum að bregðast við, sem þau gerðu hratt og faglega. Skrifleg stað­festing barst frá trúnaðar­manni þar sem málinu var sagt lokið.“

Á fimmtudaginn í síðustu viku hafði frétta­maður Ríkis­útvarpsins samband við Sólveigu Önnu til að spyrja hana út í umrædda ályktun. Í kjölfar þess ákvað hún að ávarpa starfs­fólk skrif­stofu Eflingar að morgni síðasta föstudags. „Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöðunni. Annað hvort kæmi eitthvað skriflegt frá þeim sem myndi bera til baka ofstækis­fullar lýsingar úr ályktun trúnaðar­manna og orð sem frétta­maður notaði um „ógnar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér formennsku í félaginu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi