Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Daniella tilkynnti sjálf andlát sitt: „Horfðu á lífið með rómantískum augum!“

Blessuð sé minning hennar.
Blessuð sé minn­ing hennar. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fjöl­skylda 25 ára konu birti til­kynn­ingu um and­lát hennar með hennar eigin orðum á Facebook og LinkedIn, 23. febr­úar. Konan skrif­aði sjálf til­kynn­ing­una.

Eonline.com segir frá þessu í dag en þar kemur fram að konan, Daniella Thackray, hafi lát­ist eftir harða bar­áttu við cholangiocarinoma sem er sjald­gæft og erfitt krabba­mein sem vex í göng­unum sem flytja gall frá lifur til smá­þarma.

„Ef þið eruð að lesa þetta,“ skrifað Daniella í byrjun færsl­unnar, „þá þýðir það að ég hef beðið í lægri hlut fyrir krabba­mein­inu og fjöl­skylda mín er að birta síð­ustu skila­boðin mín.“

Daniella, sem er frá Leeds í Bret­landi, útskýrði í skila­boð­unum að „ekki séu öll krabba­mein tengd lífstíl“ og að þrátt fyrir að hún hafi verið „heil­brigð og virk“ hafi hún fengið krabba­mein sem „kom ekki vegna ein­hvers sem ég stjórna og líf mitt varð aldrei eins aftur,“ eins og hún orð­aði það.

Bætti hún við að það hafi ekki verið „nein lækn­ing“ við krabba­mein­inu, en að hún von­aði að „með tím­anum verði fleiri rann­sóknir gerðar um þennan hrotta­lega grimma sjúk­dóm, svo bjarga megi fleiri lífum.“

Þrátt fyrir bar­áttu hennar, sagð­ist Daniella hafa náð að „njóta hvers augna­bliks“ sem hún átti eftir. „Eins og ég hef alltaf sagt og trúað, þá á maður að njóta litlu hlut­anna í líf­inu og njóta hvers augna­bliks! Horfðu á lífið með róm­an­tískum augum! Gerðu allt sem gerir þig ham­ingju­saman og láttu engan taka gleð­ina frá þér.“

Daniella sendi einnig ást­ar­kveðjur til vinnu­staðar síns, en hún vann á mark­aðs­stofu, til fjöl­skyldu sinnar, vina, unnusta síns Tom Calvert og til „loðna barns­ins“ hennar Leo, sem hún sagði að hafi „örugg­lega verið settur í líf mitt til að hjálpa mér að lýsa upp mína myrk­ustu daga.“

Loka­orðum sínum beindi hún til Tom: „Ég elska þig og mun ávalt gera það. Takk fyrir að styðja mig og færa mér svo mikla ást og ham­ingju í lífið. Farðu nú og njóttu lífs­ins, þú átt það skilið.“

Tom skrif­aði sjálfur færslu um Daniellu á LinkedIn, þar sem hann kall­aði hana „fal­lega og hug­rakka unn­ustu“. Sagði hann einnig: „Því miður brást heim­ur­inn þér og fram­tíðin var tekin af þér á svo grimmi­legan hátt. En þú lifðir svo ótrú­legu lífi og þú varst svo elskuð. Ég sakna þín Daniella og ég er svo ótrú­lega stoltur af þér nú og að eilífu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Pítsustaðurinn hóf starfsemi í Mathöll Höfða á seinni hluta árs 2021.
Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu