Gangandi vegfarendur urðu vitni að því þegar ökumaður ók gegn einstefnu utan í bifreið sem varð til þess að hún kastaðist á aðra kyrrstæða bifreið. Maðurinn lét það ekki stoppa sig og ók af vettvangi til síns heima. Lögregla hafði upp á manninum og var hann handtekinn á heimili sínu þar sem hann viðurkenndi brotið. Því næst var hann fluttur á lögreglustöð en maðurinn var grunaður um ölvunarakstur. Að lokinni sýnatöku var hann vistaður í fangaklefa lögreglu þar sem hann var í of annarlegu ástandi til þess að gefa skýrslu.
Íbúi í hverfi 107 hafði samband við lögreglu og tilkynnti um eld í fjölbýlishúsi. Talið er líklegt að eldurinn hafi kviknað út frá rafskútu í hleðslu en lögregla rannsakar nú málið. Lögregla lagði hald á talsvert magn af þýfi í gærkvöldi eftir húsleit á heimili aðila sem grunaður var um vörslu fíkniefna. Auk þess fundust þrjú skotvopn og var maðurinn vistaður í fangaklefa vegna rannsókn málsins. Þá sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti og stöðvaði meðal annars tvo ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir