Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fyrrum Alþingsmaður vill róttækar breytingar: „Búið að rústa mörgum sveitarfélögum“

Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og fyrr. Alþingismaður
Grétar Mar Jónsson, skip­stjóri og fyrr. Alþing­is­maður

Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, telur að Sam­fylk­ingin geti hjálpað sjó­mönnum.

Næst­kom­andi föstu­dag verður hald­inn fundur um stjórn fisk­veiða á Íslandi á Kaffi Catalínu og hefst fund­ur­inn klukkan 17:00. Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, verður einn af frum­mæl­endum fund­ar­ins en ásamt því að hafa verið Alþing­is­maður er Grétar þaul­vanur skip­stjóri. Mannlíf heyrði í Grétari til að for­vitn­ast hvað honum þykir um núver­andi skipu­lag á fisk­veiðum á land­inu.

„Í fyrsta lagi var ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, að segja að hún ætl­aði að halda áfram byggja fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið á núver­andi kvóta­kerfi. Við sem erum búin að vera þátt­tak­endur í því í 40 ár að nota þetta kvóta­kerfið höfum ekki séð að neinar fiski­teg­undir, sem eru kvóta­bundnar, hafi lag­ast. Að hægt sé að veiða meira úr því í dag en fyrir 40 árum. Það er bara öfugt. Það er alltaf nið­ur­skurður og minna sem er hægt að veiða og nýta úr stofn­unum. Þess vegna er ekki hægt að byggja neitt á þessu. Því þegar kvóta­kerfið var sett á þá var mark­miðið að byggja um fiski­stofna og það hefur ekki tek­ist,“ sagði skip­stjór­inn um málið.

„Svo átti þetta að styrkja byggð í land­inu og það er alveg þver­öf­ugt. Það er búið að rústa mörgum sveit­ar­fé­lögum,“ sagði Grétar og hann er með lausn á vanda­mál­inu. „Ég vil að þeir sem eru að nýta kvót­ann eigi að þurfa að bjóða í veiði­heim­ild­irnar þannig að verði hæst­bjóð­andi sem fær.“

Grétar hefur litla trú á að núver­andi stjórn muni gera nokkuð til að laga kerfið.

„Það er engin von til þess að þeir flokkar sem stjórna núna gerir neinar breyt­ingar. Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa stutt kvóta­kerfið í gegnum eld og brenni­stein. Hafa verið að verja hags­muni fárra útvalda. Arfurinn af auð­lind­inni rennur til fárra fjöl­skyldna,“ en Grétar hefur aðeins meiri trú á öðrum flokkum á Alþingi.  

„Auðvitað vonar maður að Sam­fylk­ingin sjái ljósið en það er kannski bjart­sýni að halda það. Lofuðu að inn­kalla veiði­heim­ildir 2009 og end­ur­út­hluta en gerðu það ekki. En auð­vitað er komið nýtt fólk og maður vonar að það sjái mögu­leik­ann til að breyta þessu. Flokk­arnir vilja margir gera gott fyrir heil­brigð­is­kerfið og aldr­aða en ekk­ert af þessu verður gert án breyt­inga á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu,“ sagði Grétar og sagði að sjáv­ar­út­veg­ur­inn væri auð­lind sem ætti að renna um æðar þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum