Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Síðasta myndin af týnda Skotanum birt

Fjöl­skylda og vinir leita örvænt­ing­ar­fullir í Albufeira

Greg Monks
Greg Monks Ekkert hefur spurst til Skotans í viku. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Síðasta myndin af skoska mann­inum Greg Monks hefur verið birt á net­inu á meðan leit stendur enn yfir í portú­galska ferða­manna­bænum Albufeira.

Greg, 38 ára gam­all og búsettur í Cambuslang nálægt Glasgow, hvarf spor­laust á þriðju­dags­kvöld fyrir viku, aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að hann kom til Algarve-svæð­is­ins ásamt vinum sínum.

Myndin, sem sýnir hann klæddan dökk­bláum Nike-stutt­buxum og stutt­erma­bol, var birt í sér­stökum Facebook-hóp sem stofn­aður var til aðstoðar við leit­ina. Áður hafði verið talið að engar myndir væru til af honum þetta kvöld, en systir hans hafði sagt að þau vissu ekki með vissu í hverju hann hefði verið klæddur þegar hann hvarf.

Greg MonksSíðasta myndin af Monks.

Myndinni var deilt yfir 800 sinnum á sam­fé­lags­miðlum af fólki sem von­ast til að Greg finn­ist heill á húfi og kom­ist aftur í sam­band við ást­vini sína. Fólk hefur einnig sent fjöl­skyld­unni óskir um að hann finn­ist heill á húfi, sér­stak­lega í kjöl­far fregna um að hann hafi sést á örygg­is­mynda­vélum.

Greg var í steggjar­ferð með vinum sínum, þar sem hann átti að vera svara­maður í kom­andi brúð­kaupi. Hann hvarf eftir að hafa yfir­gefið vin­sæla versl­un­ar­götu í Albufeira til að fara aftur í íbúð­ina sem hóp­ur­inn gisti í. Síðan hefur ekk­ert spurst til hans.

Portú­galska lög­reglan hefur sagt fjöl­skyld­unni að hann hafi síð­ast sést á örygg­is­mynda­vél um fjög­urra kíló­metra fjar­lægð frá íbúð­inni, í íbúða­hverf­inu Cerro de Águia. For­eldrar hans og aðrir ást­vinir, sem eru nú úti í Albufeira, leita hans af örvænt­ingu.

Jillian Monks, 36 ára systir Gregs, hefur þurft að vera eftir í Glasgow með börn sín tvö, en seg­ist gera allt sem hún getur til að dreifa upp­lýs­ingum á sam­fé­lags­miðlum og reyna að ná til heima­manna.

„Þetta er versta martröð hvers ein­asta for­eldris. Við höfum aldrei upp­lifað svona sárs­auka áður. Þetta er hrylli­legt. Við reynum að halda í von­ina en við vitum að þetta er gjör­sam­lega ólíkt Greg. Ef hann gæti haft sam­band, þá hefði hann gert það. Við erum öll dofin og biðjum til Guðs um að hann sé heill á húfi. Við erum öll frá­vita af áhyggjum,“ segir Jillian í við­tali við The Record.

Samkvæmt henni hafði steggja­hóp­ur­inn aðeins verið í íbúð­inni í um 20 mín­útur áður en þeir fóru út. Þeir eru taldir hafa farið á King's Cross kara­oke-bar í miðbæ Albufeira áður en Greg yfir­gad hóp­inn.

Kærasta Gregs, Nicole, sem er stödd í Albufeira, fór í gegnum far­angur hans til að sjá hvað væri horfið og telur að hann hafi verið í dökk­bláum Nike stutt­buxum og stutt­erma­bol. Hún er miður sín og vill aðeins fá hann heim aftur.

Jillian segir að vinir Gregs hafi verið miður sín og í áfalli þegar þeir átt­uðu sig á að hann hafði ekki snúið aftur í íbúð­ina. Þeir til­kynntu hann strax týndan eftir 12 klukku­stundir og eyddu rest­inni af ferð­inni í leit og aðstoð.

Þeir hafa nú snúið aftur heim, en Greg átti líka að vera með þeim á heim­leið.

Fjöl­skyldan heldur stöð­ugu sam­bandi við lög­reglu og hefur málið verið vísað til portú­gölsku rík­is­lög­regl­unnar. Fjöl­skyldan seg­ist þó ekki hafa fengið að sjá upp­tök­urnar úr örygg­is­mynda­vél­unum sem sýna Greg í Cerro de Águia og biður lög­reglu nú um aðgang að þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr