Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Sigga Dögg hugsi yfir stöðu leigjenda: „Ég er nefnilega pínu brjáluð“

Sigga Dögg kyn­fræð­ingur seg­ist mjög hugsi yfir stöðu leigj­enda á hús­næð­is­mark­aðnum á Íslandi og leitar svara hjá Pírötum.

Sigga Dögg skrif­aði færslu á Facebook þar sem hún fer yfir það hversu erfitt það sé að vera á leigu­mark­aði á Íslandi í dag en hún seg­ist kjósa að leigja. „Eina sem ég vil er bara góður lang­tíma­leigu­samn­ingur og gott sam­band við leigu­sala.“ Segist hún hafa alls­konar reynslu af leigu­mark­aðnum og oft­ast sé það jákvæð reynsla. „Nema hvað. Mér blöskrar svo ákvæðin sem sett eru á leigj­endur með notkun á rým­inu þeirra,“ skrifar Sigga Dögg og útskýrir að hún búi í stóru hús­næði en að hún megi ekki leigja út her­bergi sem stendur autt, vegna ákvæðis um það í leigu­samn­ingnum. Bætir hún við: „Þannig að í hús­næð­is­skorti sem nú, sem áður, ein­kennir íslenskan markað þá má ekki full­nýta hús­næði sem stendur til boða. Af hverju ekki?“

Því næst seg­ist Sigga Dögg hafa kíkt í Alþing­is­bækur frá árinu 1939 „til að læra af sög­unni“, en þar mátti finna þras um hús­næð­is­skort. Þar lagði ein­hver til að eig­endur stórra hús­næða mætti fram­leigja her­bergi, ann­ars greiða stór­eign­ar­skatt. „Nú er ég ekki að leggja til auk­inn skatt (og þó…!) en frekar að við skoðum aðeins stöð­una á leigu­mark­aði og hættum að líta á það fólk sem drasl sem þráir ekki að fá hús­næð­is­lán hjá bank­anum,“ skrif­aði Sigga Dögg og bætti við: „Svo hef ég alls­konar til­gátur um fátækt­ar­skömm íslend­inga og sögu­bæk­urnar renna heldur betur sterkum stoðum undir þá til­gátu og setur flott­ræf­ils­hátt í gott sam­hengi.“

Að lokum hlekkjar hún tvo Pírata í færsl­una og spyr þá hvort hvort þau geti „tekið snún­ing. Ég er nefni­lega pínu brjáluð.“

Björn Leví Gunn­ars­son svar­aði kall­inu: „Vanda­málið við þetta allt er hvernig sér­eigna­stefnan og líf­eyr­is­kerfið flétt­ast saman. Núver­andi líf­eyr­is­kerfi gerir ráð fyrir því að fólk búi í skuld­lausu eigin hús­næði því líf­eyrir á að duga ágæt­lega sem fram­færsla án hús­næð­is­kostn­aðar. Þannig að hversu mikið sem fólk vill hafa virkan leigu­markað, þá er aldrei gert ráð fyrir því sem fram­tíð­ar­úr­ræði fyrir neinn. Ef það á að breyt­ast þá þarf eitt­hvað að breyt­ast sam­hliða í líf­eyr­is­kerf­inu.“

Sigga Dögg svar­aði: „Ah þannig það verður land­flótti um sex­tugt. Got it. En ann­ars er leigu­mark­að­ur­inn marglaga og svarið og spurn­ingin dýpri en bara líf­eyr­is­sjóða­mál – ekki satt? Ekki þarf fyrir utan að èg verð lík­leg­ast komin með hús­bíla­hverfi þegar èg kemst á hin lang­þràða­eft­ir­launa­spena.“

Og Björn Leví svar­aði aftur: „Það er einmitt það sem er að ger­ast. Það er þessi rör­sýn sem verður að laga ein­hvern vegin, en það þýðir að líf­eyr­is­kerfið verður að taka til­lit til þess ein­hvern vegin. Kannski „hús­næð­is­líf­eyrir“ sem væri ein­hvers konar hlið­stæða þess að safna upp í eigið hús­næði.“

Sjá má færsl­una hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar