Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Anna mun aldrei bakka með orð sín um Samtökin 22: „Enda geisla ég af sakleysi eins og þjóð má vita“

Anna Kristjánsdóttir
Anna Krist­jáns­dóttir

Anna Krist­jáns­dóttir svar­aði hót­unum for­manns Sam­tak­anna 22 um lög­sókn vegna meið­yrða, sem Mannlíf sagði frá í gær, í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni.

Mannlíf sagði frá því í gær að Eldur Ísidór DeVille, for­maður Sam­tak­anna 22, hafi hótað að heyra í lög­fræð­ingi sam­tak­anna, dragi Anna ekki til baka orð sem hún lét falla í dag­bók­ar­færslu sinni. Anna var í færsl­unni að furða sig á upp­gangi hópa „hat­urs­fólks gegn trans­fólki“ en þar sagði hún meðal ann­ars: „Svo eru það Samtökin 22 sem virð­ast vera með það eitt á stefnu­skránni að vera hommar sem hat­ast út í trans­fólk.“

Sjá einnig: Formaður meintra hat­urs­sam­taka hótar mál­sókn: „Ég hef sam­band við lög­fræð­ing okkar“

Í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni minn­ist Anna á hótun Elds en hún seg­ist ekki fagna yfir­vof­andi stefnu en að hún muni aldrei bakka með orð sín. Þá seg­ist hún hafa ýmis­legt ósagt um Samtökin 22 en að hún vilji ekki skemma Gleði­vik­una en „það fær von­andi að flakka eftir helg­ina.“

Færslu­brotið má lesa hér fyrir neðan:

„Ég frétti það í kvöld frá Mannlífi að for­maður Sam­tak­anna 22 ætlar að stefna mér eða kæra mig, hvort heldur er, vænt­an­lega fyrir meið­yrði í sinn garð og Sam­tak­anna 22. Ég get ekki sagt að ég fagni slíku, hvort heldur er um að ræða stefnu eða ákæru, enda geisla ég af sak­leysi eins og þjóð má vita. Formaður umræddra sam­taka má vita það að ég mun aldrei bakka með orð mín ef komi til máls­höfð­unar og ef svo illa fer að ég tapi mál­inu, sem mér finnst ólík­legt, þá mun ég mæta fyrir dóm­ara hér í Paradís.

Það er ýmis­legt ósagt um Samtökin 22 sem ég hefi verið beðin um að þegja yfir til að spilla ekki Gleði­vik­unni, Reykja­vík Pride, en það fær von­andi að flakka eftir helg­ina.Ef svo illa fer að ég verði dæmd sek af orðum mínum, mun vafa­laust fylgja á eftir vist í dýpstu dýflissum spænska rann­sókn­ar­rétt­ar­ins, en þá veit ég ekki hvort að ég megi hafa tölv­una með í dýfliss­una og því óvíst hvort að frek­ari pistla­skrif verði eftir það.Ég veit um nokkra lög­fræð­inga sem eru til­búnir til að verja mig út í rauðan dauð­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar