Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Guðrún Sóley hatar að henda mat og er meðvituð um umhverfisvernd: Vill ekki „vera neyslugrís“

Guðrún Sóley Gestsdóttir. Mynd úr einkasafni.
Guðrún Sóley Gests­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vikunnar, Guðrún Sóley Gests­dóttir, er einn umsjónar­manna Kast­ljóssins á RÚV og fjallar þar helst um menningu, viðburði og listir. Hún býr í Vestur­bænum með hundinum Jakobínu og ver næstum öllum sínum frítíma utandyra – þá helst á fjöllum eða kajak.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég versla oftar og minna í einu – hreinlega hata að henda mat svo ég vil frekar kaupa oftar og hafa þá nákvæmari tilfinningu fyrir hvað vantar og nýtist. Ef eitthvað hráefni er til heima í miklu magni legg ég viðleitni í að finna fjöl­breyttar uppskriftir til að nýta það, hægt að búa til svo gjör­ólíkar máltíðir með því að varíera kryddum, sósum og meðlæti. Og auðvitað eldunar­aðferð. Svo mætti kalla það sparnaðar­aðferð að vera vegan – oft er kjöt það dýrasta í matar­körfu fólks auk nokkurra annarra dýra­afurða. Vitaskuld er allur gangur á því en minn matar­kostnaður lækkaði allavega verulega eftir að ég varð vegan. 

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég endurnýti eins og ég get – skola umbúðir og ílát og nota aftur, flokka pappa, plast og flöskur en þarf að gera betur með lífrænan úrgang. Geymi þó alltaf lúna banana í fyrsti fyrir nicecream og hýði og grænmetis­afganga fyrir soð og súpur. Þá reyni ég að versla sífellt meira af notuðum fötum, þá helst í Rauða­kross­búðunum og Hringekjunni. Ég læt gera við föt og jafnvel breyta þeim á sauma­stofum – mæli með því, það er eins og að eignast nýja flík í hvert sinn! Eins hugsa ég vel um skó og aukahluti og fer með þá til skósmiðs frekar en að kaupa alltaf nýtt. Pakka gjöfum inn í dagblaða­pappír og nýti fallegar flöskur sem blómavasa og kerta­stjaka. 

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Með hverju ári eykst tilfinning mín fyrir því hvað pláss er verðmætt og vil með öllum ráðum koma í veg fyrir að heimilið mitt (og tilvera almennt) fyllist af dóti og drasli. Ofhlaðin íbúð krefst auk þess meiri þrifa, skipulags og tiltektar og ef eitthvað er verð­mætara en pláss þá er það tími – vil frekar eiga minna og spara þannig hvort tveggja; pláss og tíma. Mig langar rosalega að vera svona Búddamúnks-minimalisti með einlita staka hörflík í fata­skápnum, smávegis misosúpu í eldhús­skápnum og lifa á loftinu og þögninni en það er ennþá óralangt í það land. En þið vitið, ég er að reyna.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Föður­landi. Ég er gjör­samlega sjúk í föðurlönd (innsta lag/stillongs), má hreinlega ekki sjá föðurland í verslun, þá er ég búin að kaupa það. Á einhver 11, 12 sett og hef sett sjálfa mig í strangt föðurlands­kaupabann. Þetta er bara svo yndis­legur fatnaður: hlýr, mjúkur og prakt­ískur. Lífs­nauðsyn­legur á veturna og töff á sumrin. Virkar líka sem kósýföt heima og í raun náttföt. Hér er ég að skrifa mig inn á að kaupa eitt sett í viðbót.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Sannarlega. Ég er í stöðugri baráttu við að vera ekki fávís neyslu­grís – reyni að finna nýja og nýja möguleika til að skilja sem minnst eftir mig og tileinka mér lifnaðar­hætti sem menga hvorki né skaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi